Mánudagur, 6. júní 2011
Geir H., prinsipp og tækifærismennska
Atlanefnd alþingis lagði til að fjórir ráðherrar hrunstjórnarinnar yrðu ákærðir: Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni Mathiasen og Björgvin G. Sigurðsson.
Tveir þingflokkar tóku prinsippafstöðu til tillagna Atlanefndar. Sjálfstæðisflokkurinn var alfarið á móti öllum ákærum en Vinstrihreyfingin grænt framboð hlynnt. Prinsippið sem var í húfi var eftirfarandi: Annað hvort átti að ákæra alla fjóra ráðherrana sem báru ábyrgð á efnahagsmálum íslenska lýðveldisins í aðdraganda hrunsins eða engan.
Illu heilli fyrir prinsippumræðu í stjórnmálum er starfandi flokkur á Íslandi sem heitir Samfylkingin.
Samfylkingin sá til þess að prinsippmál snérist upp í einelti gagnvart Geir H. Haarde.
Fyrstu pólitísku réttarhöldin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.