Hinir 25 hégómlegu

Stjórnlagaþingið var hugsað til að fjalla um stjórnarskrá lýðveldisins og rúmlega 500 Íslendingar gáfu kost á sér. Kosningarnar voru úrskurðaðar ógildar og við það situr. Þeir 25 sem fengu framgang í ólögmætu kosningunum geta vitanlega stofnað með sér stjórnarskrárfélag og komið sér saman um nýja stjórnarskrá til að kynna fyrir almenningi.

Hinir 25 sem fengu ólögmæta kosningu ættu á hinn bóginn ekki að reyna að skapa sér vettvang í skjóli ríkisvaldsins, t.d. með því að fara fram á sérstaka útnefningu til að fást við stjórnarskrána. Þar með væru þessir 25 að þykjast yfir almenning hafnir og fá sérstakt forskot að fjalla um stjórnarskrána sem er sameign þjóðarinnar.

Hégóminn sem felst í því að biðja um fund með innanríkisráðherra að ræða sérstaka tilnefningu rímar ekki vel við að sannfæring um nauðsyn nýrrar stjórnarskrár hafi verið drifkraftur þeirra 25 sem fengu ólögmæta kosningu.


mbl.is Fundað um stjórnlagaþingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband