Mánudagur, 24. janúar 2011
Launalækkun samkvæmt valdboði ESB
Írar eru sannfærðir um að Evrópusambandið standi á bakvið bein inngrip í gerða kjarasamninga þar sem laun voru lækkuð um 12 prósent. Gunnar Rögnvaldsson bendir á að hér sé komið fordæmi fyrir miðstýrðu Evrópuvaldi sem drottni yfir þjóðríkjum sem standa höllum fæti. Líkur eru á að fyrirkomulagið verði varanlegt nema einstök þjóðríki segi hingað og ekki lengra.
Evru-ríkin eiga þess ekki kost að fella gjaldmiðla sína til að mæta búsifjum. Evran er skráð samkvæmt þörfum þýsk-franska öxulsins og af því leiðir ójafnvægi fyrir jaðarríkin.
Verkalýðsleiðtogar hér á landi sem dásama aðild að Evrópusambandinu eiga líka að útskýra fyrir félagsmönnum sínum að svo gæti farið að kjarasamningar hér á landi yrðu á að blessun Brussel áður en þeir tækju gildi. Og, það sem meira er, Brussel gæti ákveðið að kippa kjarasamningum úr sambandi ef þær aðstæður sköpuðust að ekki væri innistæða fyrir þeim.
Athugasemdir
já, og þá verðum við ekki spurðir álits um hvað gera skuli. Brussel mun sjá um þessi mál frá A til Ö og íslendingar taka við tilkynningum um hvað sé okkur fyrir bestu!
Vilhjálmur Grímsson (IP-tala skráð) 24.1.2011 kl. 20:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.