Fimmtudagur, 1. júlí 2010
Krugman: Ísland rústar kreppuríki ESB
Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði Paul Krugman vekur athygli á því í dálk sínum í New York Times að Ísland með sína krónu og fullveldi óskert gengur mun betur að sigrast á efnahagsvandanum en kreppuríkjum Evrópusambandsins Eistlandi, Lettlandi og Írlandi.
Kreppan á Íslandi var dýpri og erfiðari en á byggðu bóli, segir Krugman. Hann þakkar sjálfstæðum gjaldmiðli og óhefðbundnum úrræðum að Íslendingum tókst betur upp en ESB-ríkjum að takast á við kreppuna.
Fullvalda Ísland með eigin mynt er hornsteinn byggðar hér á landi. Það sjá allir nema Samfylkingin og fámenn auðrónadeild sjálfstæðismanna.
Athugasemdir
Grein Krugman er fyrir margra hluta sakir merkileg. Frjálshyggjan og einkavæðing bankanna eru að hans mati helstu ástæður kreppunnar. Sú þróun til vaxandi ójafnrar tekjudreifingar sem einkenndi allt valdaskeið Davíðs Oddssonar nær hámarki á árunum fyrir hrun. Þau 1% sem hafa hæstar tekjur taka sífellt meira til sín. (heiðar már fékk tæpar 900 milljónir eitt árið!)En af hverju sleppur ísland tiltölulega vel að mati krugmans? krónan er látin falla gífurlega sem slær á eftirspurn eftir erlendri vöru og þjónustu.Einnig er komið á ströngum gjaldeyrishöftum til að torvelda fjármagnsflutninga eða gera þá dýrari. þetta er rétt en ekki nein ný sannindi. Frjálst fall krónunnar þýðir auðvitað frjálst fall kaupmáttar. Erlendar skuldir rjúka upp að sama skapi. Atvinnuleysið helst hins vegar tiltölulega lítið. Páll nokkur Vilhjálmsson hefur hugsanlega lesið greinina og skilið hana sínum skilningi og dregið af henni sínar ályktanir. það mun ekki trufla nokkurn mann.En gaman væri að fá að vita hverjir eru auð-rónarnir í flokknum.
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 16:56
http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Hannes/sagan-komin-hringinn
Björn Ívar (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.