ESB-flokkar tapa

Samfylkingin, sem vill skilyrðislausa aðild að Evrópusambandinu, tapar fylgi. Framsóknarflokkurinn, sem  vill sækja um með stífum skilyrðum, tapar fylgi. Flokkarnir sem eru með fullvalda Ísland á dagskrá bæta við sig fylgi.

Þjóðarstraumurinn er gegn ævintýrum á erlendum vettvangi, hvort heldur efnahagslegum eða pólitískum.

Umsóknina um aðild að Evrópusambandinu ber að taka strax tilbaka.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur í sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ekkert ESB...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 1.7.2010 kl. 08:59

2 identicon

,,Samfylkingin, sem vill skilyrðislausa aðild að Evrópusambandinu" - athyglisverð fullyrðing, ja sem sumir myndu flokka undir helbera lygi.

atli már (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 09:37

3 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Atli Már, Samfylkingin hefur aldrei sett skilyrði fyrir aðild að Evrópusambandinu.

Páll Vilhjálmsson, 1.7.2010 kl. 10:06

4 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Frábært að þeir flokkar sem eru með hvað skýrustu stefnu gegn ESB eru í meirihluta samkvæmt þessari könnun.  Nú verður V-G að hlýða vilja fólksins í landinu og berjast fyrir því að ESB umsóknin verði dregin til baka, eða hreinlega að slíta ríkisstjórn.

Guðrún Sæmundsdóttir, 1.7.2010 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband