Krónan - Evran: 3-0

Launamenn í Grikklandi, Spáni og Írlandi búa við evru og beinar launalækkanir. Stjórnvöld í þessum löndum eiga ekki annan kost en að segja verklýðshreyfingunni stríð á hendur og breyta launatöxtum til lækkunar. Líkleg afleiðing er verðhjöðnun í þessum efnahagskerfinu og atvinnuleysi á annan tug prósenta.

Hér á Íslandi lækkar gengi krónunnar sem jafnar byrðar vegna efnahagshrunsins. Ríkir Grikkir, Spánverjar og Írar geta flutt evrurnar sínar í öruggt skjól og komið sér undan því að borga sinn hluta í endurreisninni. Hér á Íslandi sér blessuð krónan til þess að allir taki þátt - gjaldeyrishöftin eru til þess.

Sérstakur krónubónus er að Hæstiréttur dæmdi myntkörfulán ólögleg. Krónan er þjóðargersemi.

 


mbl.is Funda um gengistryggð lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vil benda þér á hversu það hefur aukist að fólk sendi peninga út sem gjafir. Gjaldeyrishöftin eru aðeins að virka á litla manninn en ekki stóra.  Í því sambandi bendi ég á að lesa reglur Seðlabankan hvernig þau mismuna efnaminna fólki og efnameira fólki.

Ég er sjómaður, en fæ laun í íslenskum krónum.  Ég fæ miklu fleiri krónur í dag, en ég fæ enn færri evur en fyrir hrun.  Það merkir að kaupkraftur minna launa er ekki enn búinn að ná .því sem þau voru fyrir hrun.  Það er íslenska krónan.

Krónan blekkir.  Flestir sjá það bara ekki strax.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 13:08

2 identicon

Málið er bara að Evran blekkir meira.

Evran er ekki stabilisator alheimsins lengur og verður ekki vegna þess að hún er Fiat peningur af verstu gerð.  Það hefur verið afhjúpað, og batnar ekki í bráð.

Krónan er þó í það minsta endurspeglun hagstjórnar þessa litla kerfis sem við búum í.  Og það er hægt að kjósa í burtu stýrimenn hér.  Þrátt fyrir allt.

Hver var það sem innleyddi löggjöfina  um bann gjaldmiðlalána 2001? 

Það var þó ekki Davíð O. að bjarga almenningi, 10 árum seinna???  !!

jonasgeir (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband