Fimmtudagur, 20. maí 2010
Verkalýðselítan vælir
Skrifstofufólk ASÍ hefur á umliðnum árum einkum búið í haginn fyrir sjálft sig, dekkað sér borð á kostnað lífeyrisþega og stutt ESB-inngöngu Samfylkingar í trássi við hagsmuni óborinna kynslóða. Þegar verkalýðselítan sér fram á þrengingar í lífeyrisiðnaði og hugguleg Brussel-tilvera ekki í sjónmáli er gripið til belgings.
Verkalýðselítan þarf að svara til saka fyrir meðvirkni með auðmönnum á útrásartímum þar sem peningum lífeyrissjóða var fleygt í bullrekstur og að hafa hugsað meira um sérhagsmuni en almannahagsmuni í Evrópusækni.
Víst brást stjórnmálastéttin í heild sinni - en verkalýðselítan tók þátt í sukkinu og gætti ekki hagsmuna launþega. Forseta ASÍ ferst illa að þenja sig.
Íhuga verkföll í haust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gylfi er ömurlegur lýðskrumari sem enginn tekur mark á. Það er varla til aumari rotta en þetta viðrini.
Guðmundur Pétursson, 21.5.2010 kl. 00:28
Prófaðu að slá inn eftirfarandi (með gæsalöppum) inn á google: "al-cap" "gylfi"
og skoða svo S.A. í Lúxemborg. Það væri mjög fróðlegt að vita af hverju Gylfi og Á.S. eru með nafnleyndar-eignarhaldsfélag (Al-Cap) í Lúxemborg.
skjór (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 01:00
Hvur þremillinn! Í varðhald með fíflið strax meðan þetta verður rannsakað.
Dingli, 21.5.2010 kl. 03:11
Senda þessar upplýsingar um Gylfa ESB/ASÍ Yfirjólasvein þegar í stað til athugunar hjá Sérstökum saksóknara.
Gunnlaugur I., 21.5.2010 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.