Sunnudagur, 28. mars 2010
Einangrun elur á örvæntingu
Samfylkingin er einangruð í íslenskum stjórnmálum og þeim fækkar óðum sem vilja halda í illa þokkaða stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Forsætisráðherra heggur í sama knérunn og kennir vinstri grænum um ófarir stjórnarinnar.
Skynsamlegt er af hálfu vinstri grænna að taka ummæli forsætisráðherra formlega á dagskrá þingsflokks. Umræðan varpar ljósi á örvæntingu Samfylkingarinnar.
Íkveikjustjórnmál Samfylkingar verða aðeins upprætt með því að mæta þeim af hörku. Það er Samfylkingin sem er að einangrast. Vinstri grænir eru í góðum málum.
VG ræðir ummæli forsætisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við Íslendingar höfum ákaflega lítinn húmor, sérstaklega fyrir sjálfum okkur. Ef við værum í Englandi væru Vg þingmenn þegar komnir fram í fjölmiðlum stoltir af uppnefninu og krefðust þess að héðan í frá væri þingflokkur Vg alltaf kallaður "kettirnir" og þingflokksherbergi þeirra "Kattholt".
Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 21:59
Það er alveg auðséð á orðum Heilagrar Jóhönnu, hverjir telja sig vera húsbændurna og hverjir séu skepnurnar og auðsveip húsdýrin á þessum Bæ í þessari Ríkisstjórn.
Samfylkinginn og hennar hyski allt saman, minnir mig alltaf meir og meir á yfirlæti og hroka siðspilltu SVÍNANNA í ádeilu kvikmyndinni "ANIMAL FARM" !
Gunnlaugur I., 28.3.2010 kl. 22:22
Smala köttum? Hvenær hefur það verið hægt?
Helga Kristjánsdóttir, 29.3.2010 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.