Fimmtudagur, 24. nóvember 2022
Leki, glæpir og hagsmunir
,,Myndböndum af árásinni líklega lekið af lögreglunni," segir í ávítunartón í frétt RÚV. Myndbandið sýnir átök glæpahópa. Áhersla RÚV er öll á lekann en ekki efni myndbandsins.
,,Rannsókn á lekanum í forgangi," segir RÚV í framhaldsfrétt. Ekkert um dramatíska myndbandið.
Á myndbandið ekki erindi til almennings? Er það ekki upplýsandi fyrir samfélagsástand?
Í RSK-sakamálinu var framinn glæpur, byrlun og stuldur. RÚV, Stundin og Kjarninn réttlættu glæpinn með því að fréttaefnið sem hafðist upp úr afbrotinu ,,átti erindi við almenning."
En átök glæpahópa eiga ekki erindi til almennings. Aðalfréttin þar er hver lak myndbandi um afbrot á opinberan vettvang til að þjóðin mætti sjá og heyra hvernig brotamenn bera sig að.
Glæpaleiti finnur til samstöðu með sínum líkum.
![]() |
Árásarmyndskeið líkast til leki frá lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)