Fimmtudagur, 27. janúar 2022
Meðvirkir fjölmiðlar spyrja ekki um glæp
Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður hætti skyndilega á RÚV föstudaginn 30. apríl sl. Sama dag tilkynnti Stundin að Aðalsteinn væri mættur til leiks. Þetta er 4 dögum áður en eitrað var fyrir Páli skipstjóra. Hvers vegna spyr enginn Aðalstein um þessi snöggu vistaskipti?
Aðalsteinn á Stundinni og Þórður Snær á Kjarnanum birtu fréttir upp úr stolnum síma Páls skipstjóra sama morguninn, þann 21. maí. Hvers vegna spyr enginn Aðalstein og Þórð Snæ um þessa samræmdu tímasetningu? Stundin og Kjarninn eiga að heita sjálfstæðir fjölmiðlar og fá út á það ríkisstyrk. Augljóst er að einhver þriðji aðili stýrir báðum miðlunum. Miðstýringin er svo ítarleg og nákvæm að daginn fyrir birtingu stolnu gagnanna hringdu félagarnir, Aðalsteinn og Þórður Snær, með tíu mín. millibili í Pál skipstjóra. Hvers vegna eru þeir félagar ekki þýfgaðir um þessi atriði?
Þórður Snær, sem er eigandi og ritstjóri Kjarnans, segir allt í lagi að fjölmiðlar hagnist á glæpum. Hvers vegna er hann ekki spurður út í fullyrðinguna? Telja blaða- og fréttamenn sig hafa rétt að stuðla að glæpum og hafa ábata af þeim? Hvað segir formaður Blaðamannafélagsins?
Vitað er að Helgi Seljan kærði nafngreindan mann til lögreglunnar fyrir að elta sig. Maðurinn var úti á rúmsjó, á togara, þegar hann átti að vera elta fréttamanninn. Hvers vegna er Helgi Seljan ekki spurður um niðurstöðu lögreglurannsóknarinnar?
Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra staðfesti lögreglurannsókn á eitrun og gagnastuldi frá Páli skipstjóra þann 19. nóvember. Heil glás af fréttamönnum hættir á RÚV í haust. Hvers vegna spyrja fjölmiðlar ekki Stefán útvarpsstjóra og RÚV-ara á flótta um samhengið þarna á milli?
Hvers vegna er ekki spurt um ársgamla falsfrétt RÚV sem nafngreinir 3 Íslendinga og segir þá ákærða í Namibíu? Enginn Íslendingur og engin íslensk fyrirtæki voru ákærð. En RÚV lætur falsfréttina standa. Eru falsfréttir réttlættar í siðareglum RÚV?
Svarið við spurningunum hér að ofan er að fjölmiðlar eru meðvirkir. Þrír fjölmiðlar RÚV, Kjarninn og Stundin tengjast alvarlegum glæp. Vinir og kunningjar á öðrum fjölmiðlum þegja í meðvirkri samstöðu.
Í þessari viku var stórt fréttamál, á RÚV og víðar, að skipstjóri Herjólfs endurnýjaði ekki réttindi sín í tæka tíð og sigldi einhverjar ferðir til og frá landi réttindalaus. Ítarlegar fréttir voru sagðar af málinu og menn kallaðir í þriðju gráðu yfirheyrslu fréttamanna vegna atviksins.
Þegar miklu alvarlegra mál, eitrun og stuldur, kemur upp skríður samanlögð blaðamannastétt landsins undir stein og þykist ekkert vita, skilja eða heyra. Það er aumur tilfallandi bloggari sem heldur málinu lifandi. Þetta er fáheyrð frammistaða fjölmiðla heillar þjóðar.
Almenningur hlýtur að spyrja sig til hvers er að halda uppi fjölmiðlum sem skipulega hylma yfir glæpi og siðleysi blaðamanna. Varðmenn almannahags liggja út í móa í fósturstellingum og sjúga þumalinn. Blaðamannastéttin í heild sinni er brandari.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)