Hraunað yfir loftslagsvá: CO2 á við 2 ára bílaumferð

Á sex mánuðum hefur eldgosið í Geldingadölum losað um 2 milljónir tonna af koltvísýringi, CO2. Árleg losun bíla hér á landi er tæp milljón tonn, skv. Umhverfisstofnun.

Á degi hverjum losar gosið 10-11 þúsund tonn af koltvísýringi, CO2, út í andrúmsloftið, samkvæmt Jarðvísindastofnun. Á hálfu ári gerir það tæp 2 milljónir tonna.

Verksmiðja er byggð á Hellisheiði sem fangar hálfsdagsframleiðslu af koltvísýringi frá Grindavíkureldum.

Umhverfisstofnun keppist við að þegja um CO2-framleiðsluna í Grindvík. Það er ekki hægt að láta gosið skammast sín og hætta að dæla upp úr jörðu koltvísýringi. En Jón og Gunnu má hræða til að kaupa rafmangsbíl.


mbl.is Hraun í Geldingadölum rennur á miklum hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tunglið og fylgi vinstriflokka

Fullt tungl er á mánudag. Þá rísa hæst geðhvörfin sem valda dómgreindarbresti og fær fólk til að gera marga vitleysuna, t.d. að kjósa vinstriflokk.

Í frétt Landsspítala um tengsl sjúkdóma og stöðu tunglsins segir að ýmsir geðsjúkdómar geri vart við sig í fullu tungli. Geðhvörf eru þar á meðal.

Skoðanakannanir teknar þegar hallar að fullu tungli gefa ranga mynd af úrslitum kosninganna á laugardag. Þegar nálgast fullt tungl eru þeir næmu ýmist ofsakátir eða þunglyndir, ekki með sjálfum sér.

Kemur laugardagur knýr raunsæið dyra eftir þokkalegan nætursvefn. Fólk kýs annað tveggja Sjálfstæðisflokk eða Miðflokk. Í það minnsta nógu margir til að landið fari ekki í hundana.

Tunglfræði til bjargar á ögurstundu.


mbl.is Vinstri sveifla þegar vika er eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. september 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband