Mánudagur, 30. ágúst 2021
Guðni og Þórður Snær - Kjarninn og KSí
Fyrir þrem árum varð uppvíst kynferðisbrot á ritstjórnarskrifstofu Kjarnans. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri vissi af brotinu en þagði. Þórður Snær útskýrði afstöðu sína fyrir þrem árum með þeim orðum að það er ,,alltaf þolenda að ákveða í hvaða farveg brot gegn þeim fara."
Guðni Bergsson fyrrum formaður KSÍ virti trúnað við þolanda kynferðisbrots þegar hann sagði ekki opinberlega frá afbrotinu. Alveg eins og Þórður Snær fyrir þremur árum.
En núna fær Guðni dembu á sig frá Þórði Snæ fyrir að stunda ,,þöggunartilburði."
Það verður ekki logið á rökvísi góða fólksins. Þegar nógu margir stunda grjótkastið kemur enginn auga á að sumir grýta úr glerhýsi.
![]() |
Stjórn KSÍ vissi af meintum brotum landsliðsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 30. ágúst 2021
Talibanar hér og þar
Taliban er nemandi í hreinni trú. Hreintrúarstefna getur bæði verið veraldleg og annars heims. Sameiginlegt bókstafstrú er ofstæki enda hafa þeir trúuðu höndlað sannleikann og leita að villutrúarmönnum að kveikja í, krossfesta, skjóta eða niðurlægja opinberlega.
Upprunaland talibana er Afganistan og þeir tala pastú. Hreintrúarstefna og bókstafstrú eru aftur fyrirbæri sem kunna mörg tungumál.
Til dæmis íslensku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 30. ágúst 2021
Nató eftir Afganistan
Nató verður að aftengja sig dómgreindarbresti Bandaríkjanna, segir þýskur öryggismálasérfræðingur, og forðast afganskt ástand í Írak í árslok.
En hvað er Nató yfir höfuð að þvælast í Afganistan og Írak? Nató var stofnað í upphafi kalda stríðsins að verjast kommúnisma og ásælni Sovétríkjanna. Kommúnisminn er dauður, Sovétríkin sömuleiðis en Nató sprelllifandi og þykist heimsveldi í miðausturlöndum og Asíu.
Afganistan sýnir svart á hvítu að vesturlönd vaða ekki inn á skítugum skónum og búa til vestrænt ríki í andstöðu við þjóð sem ekki er vestræn.
Vestræna hrokahugmyndin um eitt samfélag fyrir alla heimsbyggðina er dauð. En Nató lifir. Það er mótsögn.
![]() |
Flugskeytum skotið að flugvellinum í Kabúl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)