Fimmtudagur, 12. ágúst 2021
Gosið losar meira CO2 en allir bílar á Íslandi
Í næstu viku verður eldgosið í Fagradalsfjalli 5 mánaða. Á degi hverjum losar gosið 10-11 þúsund tonn af koltvísýringi, CO2, út í andrúmsloftið, samkvæmt Jarðvísindastofnun.
Fimm mánuðir eru 150 dagar. Það þýðir að eldgosið hefur losað rúmlega 1,5 milljónir tonna af koltvísýringi, CO2.
Samkvæmt Umhverfisstofnun er árleg losun allra bíla á Íslandi 1 milljón tonna CO2, já ein milljón.
Á aðeins fimm mánuðum hefur eldgosið losað álíka mikið af koltvísýringi og öll bílaumferð á Íslandi í eitt og hálft ár.
Gosið í Fagradalsfjalli þykir lítið. En reynt er að telja okkur trú um að fjölskyldubíllinn valdi hamfarahlýnun. Jamm.
(ps. Í þessari færslu er talað um koltvísýring, CO2. Önnur gróðurhúsalofttegund er vatnsgufa, H2O, sem hefur verið fjallað um sbr. hér. Ef útblásturinn, CO2 og H2O, er lagður saman verður litla gosið við Grindavík ábyrgt fyrir 3-4 ára losun alls bílaflota landsmanna. Fjölmiðlar keppast við að þegja þá staðreynd. Dálítið klént.)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)