Samfylkingin: kókaín og vćndi er ok - Samherji ekki ok

Í dómsskjölum í Namibíu segja ţrjú vitni, já ţrjú, ađ Jóhannes uppljóstrari sé djúpt sokkinn í kókaín og kaupi vćndiskonur í bílförmum. Međal ţeirra sem bera ţessa háttsemi upp á Jóhannes er samstarfsmađur hans, Yema-Y’Okungo, ađ ţví er kemur fram í málsgögnum.

Jóhannes uppljóstrari er eina heimildin fyrir meintum brotum Samherja í Namibíu.

Međ ályktun flokksstjórnar Samfylkingar er lögđ blessun yfir kókaínneyslu og vćndi en atvinnustarfsemi útgerđar sögđ glćpsamleg.

Hvers á Ágúst Ólafur Ágústsson ađ gjalda?


mbl.is Ríkisstjórnin grípi til ađgerđa vegna Samherja
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Samfylking og Píratar í taugaáfalli, RÚV ţegir i skömm

Jóhannes uppljóstrari í Samherjamáli RÚV, Samfylkingar og Pírata fćr útreiđ í dómsskjölum í Namibíu. Stjórnlaus kókaínneysla, vćndiskaup og ofbeldi, segir í endursögn DV.

Fyrir viku sagđi áhrifamađur í Samfylkingu: „Frá og međ ţessari helgi snúast komandi kosningar um Samherja. Ertu međ Samherja eđa ertu á móti.“ Siđa-Sunna hjá Pírötum tók Jóhannes í drottningarviđtal.

Jóhannes var aldrei trúverđug heimild. Ţađ sást langar leiđir ţegar í upphafi.

RÚV ţegir í skömm á međan Samfylking og Píratar eru í taugaáfalli. Kosningabarátta Samfylkingar og Pírata er farin í vaskinn og tiltrú RÚV ţegar komin í skolpiđ.


mbl.is Ný stjórnarskrá og ESB-ađild áherslumál
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Trump viđrar sannleikann, Facebook ritskođar hann

Fjölmiđlar segja okkur stöđu vísindalegrar ţekkingar á hverjum tíma. Eđa svo á ađ heita. Viđ höfum ekki tíma til ađ lesa okkur til um vísindaleg álitamál og enn síđur ađ leggjast í rannsóknir; ţađ krefst áralangrar menntunar og ţjálfunar.

Trump ţáverandi Bandaríkjaforseti kenndi faraldurinn, sem lagđi undir sig heimsbyggđina fyrri hluta árs 2020, viđ Kínaveiruna og vildi rannsókn á uppruna hennar. En, nei, fjölmiđlar ţóttust vita betur og fundu ,,vísindalegar sannanir."

Fjölmiđlar sögđu veiruna hafa orđiđ til á kjötmarkađi í Wuhan í Kína. En nú er komiđ á daginn ađ veiran er ađ öllum líkindum manngerđ, búin til á rannsóknastofu í Wuhan. Kínversk stjórnvöld í samvinnu viđ bandaríska vísindahagsmuni ákváđu ađ betra vćri ađ búa til ţau ,,vísindi" ađ uppruni veirunnar vćri á kjötmarkađi fremur en á rannsóknastofu. Fjölmiđlar hlađnir fordómum gegn ţáverandi forseta Bandaríkjanna bitu glađir á agniđ og gleyptu ,,vísindin" hrá. Tucker Carlson rekur ţessa hörmungarsögu á tíu mínútum.

Fjölmiđlar gengu lengra en ađ flytja gagnrýnislaust lygar kínverskra stjórnvalda og bandarískra hagsmunaađila, sem vel ađ merkja komu úr vísindasamfélaginu. Fjölmiđlar úthúđuđu ţeim sem keyptu ekki viđtekin sannindi og sökuđu ţá um samsćriskenningar og rasisma. Samfélagsmiđlar eins og Facebook og Twitter úthýstu Trump og ritskođuđu fćrslur sem efuđust um viđtekin sannindi.

Douglas Murry segir vestrćnu elítuna, fjölmiđla og ađrar valdastofnanir, eiga eftir ađ iđrast ţess ađ ganga erinda ósanninda og lyga.

Ađ mörgu leyti er Trump stórgallađur mađur. Ţađ segir nokkuđ um ástand heimsins ađ Trump er handhafi sannleikans í Kínaveirumálinu. Og er ofsóttur fyrir vikiđ.


mbl.is Trump í tveggja ára Facebook-bann
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 5. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband