RÚV styrkir stöðu sína í pólitíkinni

Hagsmunahópurinn á Efstaleiti fer að stórum hluta með dagskrárvaldið hér á landi. RÚV stjórnar fréttaflutningi, ákveður hvað eru fréttir og undir hvaða formerkjum þær eru sagðar.

RÚV er rekið fyrir skattfé almennings. Hagsmunahópurinn er í óformlegum bandalögum við þingmenn og stjórnmálaflokka.

Sigmar Guðmundsson fer beint úr höfuðstöðvum RÚV á Efstaleiti í framboð fyrir Viðreisn. Hagsmunahópurinn styrkir stöðu sína.


mbl.is Sigmar í framboð fyrir Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar: Ísland er ónýtt

Píratar líta á Ísland sem þriðja heims þjóðríki þar sem allt er vaðandi í spillingu og almenningur undir hæl auðmanna. 

Píratar óska eftir að útlendingar komi til landsins og hafi eftirlit með með þingkosningunum i haust. Íslendingum sjálfum sé ekki treystandi fyrir frjálsum lýðræðiskosningum.

Spurning hvort Píratar þurfi ekki að finna sér nýtt þjóðríki fyrir hagsmunabaráttuna. Það eru takmörk fyrir því hve íslenska þjóðin getur brauðfætt marga sem krefjast þægilegrar innivinnu á góðu kaupi skattborgaranna. Í huga Pírata er það ónýt þjóð sem ekki skaffar þægilega innivinnu handa þeim sem eru of góðir til að dýfa hendi í kalt vatn.


mbl.is Vill að ÖSE hafi eftirlit með alþingiskosningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. maí 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband