Miðvikudagur, 19. maí 2021
Gulli til Jerúsalem?
Þrír utanríkisráðherrar Evrópulanda, Þýskaland, Tékklands og Slóvakíu heimsækja höfuðborg Ísraels í þessari viku til að sýna stuðning við baráttu Ísraelsmanna gegn hryðjuverkasamtökum Hamas.
Hvað með Gulla utanríkis?
Biden svarar engu um Ísrael | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 19. maí 2021
Gísli og arabíski læknirinn
Shaden Salameh-Youssef er arabísk kona og yfirmaður bráðadeildar á ísraelsku háskólasjúkrahúsi. Hún er fyrsta ísrael-arabíska konan til að stjórna bráðadeild á ísraelsku sjúkrahúsi. Í viðtali við Jerusalem Post segir Salameh-Youssef að arabar og gyðingar verði að læra að lifa í sátt í Ísraelsríki.
Víkur nú sögunni að RÚV-aranum Gísla Marteini sem tekur undir málstað Hama-hryðjuverkasamtakanna um að tortíma Ísrael. Í skýrslu Amnesty International segir að Hamas stundi á heimastjórnarsvæðinu Gaza morð, pyntingar og misþyrmingar, ekki síst á konum og minnihlutahópum eins og samkynhneigðum.
Gísli Marteinn og viðhlæjendur hans eru sérstök tegund af fólki sem bláeygt og brosandi keppist við að fegra illskuna.
Sagði kynningarnar ekki pólitíska pistla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)