Skakki Samfylkingarturninn og uppgjör Blair

Samfylkingin var stofnuð um aldamótin til að verða ,,hinn" turninn í íslenskri pólitík. Sameinaðir vinstrimenn gáfu sér Sjálfstæðisflokkinn sem viðmið. Í fyrstu kosningunum eftir hrun virtist Samfylkingin ná markmiðinu, varð stóri turninn með 30 prósent fylgi.

En það reyndist misskilningur. Kjósendur skáru fylkinguna niður í 12,9% í þingkosningunum 2013. Þar mallar flokkurinn síðan og þarf að sætta sig við þá háðung að smælkið Vinstri grænir er stórbygging íslenskra vinstristjórnmála.

Tony Blair fyrrum formaður breska Verkamannaflokksins er hugmyndafræðingur Samfylkingarinnar. Bæði Össur og Björgvin G. státuðu sig um aldamótin að vera ,,Blairistar" og með skírteini breska systurflokksins upp á það.

Blair skrifar grein í New Statesman til að útskýra ógöngur Verkamannaflokksins og óbeint Samfylkingarinnar.

Verkamannaflokkurinn/Samfylking eru í höndum fólks sem hatast við siði og gildi almennings. Sjálfhverfustjórnmál, identity-politics, eru aðall róttæklinganna sem  fyrirverða sig fyrir sögu og menningu þjóðarinnar sem fóstraði þá. Hægrimenn sigra auðveldlega menningarstríðið sem róttækir vinstrimenn fitja upp á í einni útgáfu eða annarri. Einfaldlega vegna þess að almenningur kýs að líða vel í eigin skinni og lifa í sátt við sögu sína og menningu.

Til að bjarga valkosti við Íhaldsflokkinn þarf að afbyggja og endurbyggja Verkamannaflokkinn, skrifar Blair. Án umskipta er flokkurinn dauður.

Bretland er í reynd tveggja flokka stjórnmálakerfi. Ísland er fjölflokkakerfi. Samfylkingin stefndi að tveggja turna kerfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, með lággróðri smáflokka er leituðu í skuggsælu turnanna eftir stöðu veldissólarinnar á hverjum tíma.

Samfylkingin kom ekki fyrir sjónir eins og turn heldur skopparakringla. Í hrunstjórninni 2007-2008 var fylkingin til hægri við Sjálfstæðisflokkinn, gekk erinda auðmanna af slíkri ákefð að varaformaður flokksins lagði til að enska yrði opinbert tungumál á Íslandi. Í vinstristjórninni 2009-2013 var Samfylkingin til vinstri við Vinstri græna og efndi til pólitískrar borgarastyrjaldar gegn stjórnarskrá lýðveldisins.

Samfylkingin er flokkur án kjölfestu. Eða, svo notað sé líkingarmál úr verkfræði, turninn var skakkt byggður þegar í upphafi. 

Íslenskuð ráðlegging Blair til Samfylkingar er: leggið þið flokkinn niður. Þá er kannski hægt að byggja lítið sætt kratískt hús á traustum grunni. Nafnið er þegar komið, Viðreisnarfylkingin.

 

 


Darwin bannfærður

Höfundur þróunarkenningarinnar, Charles Darwin, breytti skilningi okkar á þróun lífs á jörðinni. Fyrir daga Darwin réðu trúarkenningar ferðinni í frásögn af upphafi jarðlífs. Einhver útgáfa af Adam og Evu í eingyðistrúarbrögðum og önnur í goðafræðum fjölgyðistrúar sagði alþjóð upphafið.

Þróunarkenningin, aftur á móti, útskýrir að lífverur þróist samkvæmt náttúruvali. Maðurinn er ein afurð rétt eins og aðrar lífverur. Tegundin, Homo Sapiens, verður til fyrir um 200 þúsund árum og sumir eiginleikar hennar, t.d. að tjá sig með tungumáli, eru yngri, líklega um 70 þúsund ára gamlir.

Frá og með útgáfu þróunarkenningarinnar um miðja 19. öld eigum við skipulega frásögn byggða á tiltækri vísinda- og fræðiþekkingu um upphaf lífs á jörðinni.

En, því miður, var Darwin hvítur Evrópumaður. Og sem slíkur er hann ótækur að áliti pólitíska rétttrúnaðarins sem telur vísindi og fræði kukl hvíta mannsins. Í háskólanum í Sheffield, heimalandi Darwins, er höfundur þróunarkenningarinnar settur í skammarkrókinn fyrir að hafa verið sem hann var; hvítur Evrópumaður.

Ritskoðun á Darwin er liður í menningarstríði þar sem öfl hjátrúar og hindurvitna skora á hólm raunsæi og rökfærslu. Bandarískir háskólar eru margir andsetnir hjátrú og hindurvitnum og þeir bresku berjast fyrir lífi sínu.

Dálkahöfundur Telegraph segir nýjar miðaldir á næsta leiti með andlegri myrkvun. Trúðar með háskólapróf frá menntastofnunum sem bannfæra Darwin eru nýju páfarnir.


Bloggfærslur 16. maí 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband