Kínaveiran og farsóttarvarnir

,,Færð eru rök fyr­ir því að taka þurfi viðvör­un­ar­kerfi í gegn á heimsvísu," segir í viðtengdri frétt um upphaf faraldursins sem veiran frá Kína er ábyrg fyrir.

Til að það gangi eftir má ekki láta skjólstæðinga Kínaveldis ráða ferðinni í alþjóðastofnunum.

Til þess eru vítin að varast.


mbl.is Röð mistaka leiddi til heimsfaraldursins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri CO2 þýðir meiri skógur - hver er á móti því?

Koltvísýringur, CO2, er fæða plantna. Aukið magn koltvísýrings í andrúmlofti jarðar eykur fæðuframboðið og skóglendi þrífst betur. 

Til skamms tíma var sú skoðun einráð að koltvísýringur væri eiturgufa er ylli hækkandi hitastigi jarðar og gerði hana óbyggilega innan fárra áratuga.

En koltvísýringur er náttúruleg lofttegund og forsenda lífs á jörðinni. Á seinni hluta 19. aldar mældist CO2 undir 300 ppm í andrúmsloftinu, sem er hættulega lítið. Magnið hefur stigið upp í rúm 400 ppm sem er gott mál og eykur grænan vöxt. Þeir sem efast ættu að gera tilraun á sjálfum sér. Fara inn í gróðurhús, en kjörvöxtur plantna er við um 1200 ppm, og spyrja sig hvort endalok lífs á jörðinni séu nærri.

Loftslagsvísindamaðurinn William Happer gerir prýðilega grein fyrir hversu heppilegt það er að koltvísýringur eykst í andrúmslofti. Þá er hægt að afla sér upplýsinga á vefsíðum eins og CO2.

Svo er auðvitað hinn kosturinn, að trúa á manngert veðurfar og að heimurinn sé að farast vegna koltvísýrings í andrúmslofti. Þá er maður kannski til vinstri en alls ekki grænn, - fjarri því.


mbl.is Endurheimt skóglendis á stærð við Frakkland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. maí 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband