Þriðjudagur, 11. maí 2021
Sósíalistar í rekstri, tapa 48 milljónum
Efling, rekstarfélag sósíalista á vinnumarkaðnum, tapaði 48 milljónum króna á síðasta ári.
Launþegar eru skyldaðir að greiða í sjóði Eflingar. Í fyrra innheimti sósíalistafélagið yfir tvo milljarða í nauðungargjöld af vinnandi fólki.
Þrátt fyrir áskrift að tekjum tekst Eflingarsossum að skila taprekstri.
Sósíalistar í félagi með Viðreisn og Samfylkingu boða stóraukin ríkisafskipti í sjávarútvegi og fasteignamarkaði.
Rökin eru þau að sósíalistar og vinstrimenn kunna svo vel til verka í rekstri.
Jamm.
Efling tapaði 48 milljónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 11. maí 2021
Gemmér pening, ég á fjölmiðil
Ritstjóri Kjarnans skrifar langan leiðara með þeim skilaboðum að hann eigi fjölmiðil og vilji fá peninga úr ríkissjóði til rekstursins. Stjórnmálamenn sem ekki opna pyngju almennings í fjölmiðlahítina, tja, þeir hata fjölmiðla. Segir ritstjórinn.
Á mælistiku ritstjóra Kjarnans leggja stjórnmálamenn ofurást RÚV enda er mokað þangað ótöldum milljörðum króna á ári af almannafé.
Ekki svo að skilja að Þórður Snær Júlíusson krefjist aukins aðhalds gagnvart hagsmunahópnum á Efstaleiti. Öðru nær, Þórður Snær er fastagestur í settinu hjá RÚV að tjá sig um menn og málefni, og vill alls ekki að skorið sé á fjárstreymið til hagsmunahópsins.
En ritstjórinn vill líka opinbert fé til sín og Kjarnans, sem er valinkunn samfylkingarútgáfa og gerir ekki annað en að skila tapi. Tómstundaiðju vinstrimanna skal ríkið borga með góðu eða illu. Þingmenn sem ekki spila með hata fjölmiðla.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 06:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)