Þriðjudagur, 30. nóvember 2021
Vísindi, örvænting og heilagur sannleikur
Við eigum að hafa áhyggjur af nýju afbrigði Kínaveirunnar en örvænta ekki, segir Biden leiðtogi hins frjálsa heims og húsbóndi í Washington. Svo kemur þetta:
Við erum með bestu bóluefnin í heiminum, bestu lyfin, bestu vísindamennina og daglega erum við að læra eitthvað nýtt, sagði forsetinn.
Ef við lærum daglega eitthvað nýtt þá var þekking okkar í gær vitleysa. Á morgun verður það rangt sem við trúum að sé satt í dag.
Vísindi og pólitík eru samfléttuð í örvæntingu samtímans um að við séum öll að deyja, vegna Kínaveiru eða loftslagsbreytinga.
Við lifum í bjálfamenningu. Allt er annað hvort eða. En lífið er bæði og. Einu sinni vissum við að hinstu rök verða alltaf hulin. Í dag höldum við okkur vita allt. En morgundagurinn býður upp á nýjan sannleika og krefst hlýðni við hann.
Menning okkar var snöggtum heilbrigðari þegar allur þorri manna trúði á almættið. Vegir guðs eru órannsakanlegir enda ekki mannsins að skilja nema brotabrot af eilífðinni. Vísindin eru aftur rannsakanleg. En þau kenna að eitt sé satt í dag en annað á morgun. Og hvorutveggja er heilagur sannleikur.
![]() |
Eðlilegt að hafa áhyggjur en óþarfi að örvænta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 30. nóvember 2021
RÚV afgangsstærð: safn og leikhús
Ýmsar leiðir eru stjórnvaldi opnar til að sýna vanþóknun á undirstofnun. Til dæmis með flutningi milli ráðuneyta. Fyrir helgi var RÚV undirstofnun menntamálaráðuneytis. En með nýskipan ráðuneyta verður RÚV undirstofnun ráðuneytis ferðamála-, viðskipta og menningar.
Lilja Alfreðs verður ráðherra. Hún nefndi ríkisfjölmiðilinn ekki á nafn þegar hún tók við ráðuneytinu.
Fréttastofa RÚV klórar í bakkann og segir undir Lilju heyra ,,stofnanir eins og Samkeppniseftirlitið, Ríkisútvarpið, Ferðamálastofa, Neytendastofa, Þjóðleikhúsið og hvers konar safnastarfsemi."
Menningarflokkur RÚV er safn og leikhús. Hvað ætli verð sýnt? Jú, afritunarherbergið í kjallaranum. Þar situr Heiðar fréttastjóri og leitar í samheitaorðabók. Á fjölunum verður leiksýningin Fjórmenningarklíkan á Glæpaleiti. Handritið er í smíðum hjá lögreglunni á Akureyri.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)