Sunnudagur, 21. júní 2020
Hælisleitandi þakkar fyrir sig
Þrefaldur morðingi í almenningsgarði í Englandi er arabískur hælisleitandi. Þeir myrtu voru valdir af handahófi eins og títt er með fórnarlömb vígamanna spámannsins.
Hælisleitandinn er 25 ára og ekki enn kominn í Paradís með óspjölluðum meyjum heldur situr hann í varðhaldi og bíður ákæru.
Líkt og margir starfsbræðra sinna reyndi gerandinn fyrir sér með smáglæpi áður en hann sóttist eftir stóra vinningnum í trúarmenningunni sem hann tilheyrir; vist í himnaríki fyrir vel unnin störf.
Hnífaárásin rannsökuð sem hryðjuverk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 21. júní 2020
Miðflokkurinn plantar kosningasigri
Borgarlína verður stórslys. Spurningin er aðeins hversu dýrkeypt. Miðflokkurinn er eina stjórnmálaaflið sem varar við stórslysinu í tíma.
Þegar borgarlína breytist úr skipulagsdraumi í martröð vinnandi fólks í umferðarteppu verður viðkvæðið að betur hefði verið hlustað á viðvörn Miðflokksins.
Miðflokkurinn uppsker kosningasigur. Aftur eru áhöld um hvort það verði um seinan til að forða stórslysinu.
Bað þingmenn Miðflokksins að sofa vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)