Fimmtudagur, 5. nóvember 2020
19 þingmenn: drepum fóstur - sem flest
19 þingmenn vinstriflokka á alþingi Íslendinga vilja hefja innflutning á þunguðum konum til fóstureyðinga. Já, þið lásuð rétt: Tillaga til þingsályktunar um aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.
Inga Sæland er skrifuð fyrir snjallri ádrepu i Morgunblaðið um málefnið. Þar segir m.a.:
Nú vilja þessir þingmenn, og líklega flestir flokksfélaga þeirra á þingi, að Ísland verði eins konar fríríki fóstureyðinga í Evrópu. Að íslenska heilbrigðiskerfið, sem berst nú þegar í bökkum vegna álags og fjárskorts, taki að sér að eyða ófullburða börnum allt til loka 22. viku meðgöngu fyrir fólk sem vill komast fram hjá lögum í eigin heimalandi.
Ástæða er að halda til haga nöfnum þessara þingmanna vinstriflokkanna sem sýna sig gjörsneydda dómgreind og mannúð. Þeir eru:
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Helga Vala Helgadóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunnarsson, Jón Steindór Valdimarsson, Halldóra Mogensen, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Guðmundur Andri Thorsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Logi Einarsson, Guðjón S. Brjánsson.
Fimmtudagur, 5. nóvember 2020
Alþjóðahyggjan fagnar ekki lýðræðinu
Enginn stjórnmálamaður nema einn í víðri veröld fær til sín reglulega tugþúsundir til að ræða pólitík á opnum fundum undir beru lofti. Enginn stjórnmálamaður nema einn í seinni tíma sögu lýðræðisins virkjar betur kjósendur til þátttöku í stjórnmálum og snarhækkar kjörsókn.
Enginn stjórnmálamaður nema einn er jafn hataður af sjálfskipuðum talsmönnum alþjóðahyggjunnar (Pútín kemur öruggur í annað sætið).
Sérstakur maður hann Trump, óneitanlega.
ÖSE segir Trump grafa undan trausti almennings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)