Fleiri deyja á Biden vakt en Trump-tíma

Á líftíma Joe Biden hafa fleiri Bandaríkjamenn dáið en á allri ævi Trump.

Þetta er tölfræðileg staðreynd, óhrekjanleg í þokkabót. Biden er eldri en Trump.

,,Nýjar rannsóknir sýna..." að vísindin eru óðum að verða ómarktæk, enda sneisafull af bulli.


mbl.is Kosningafundir Trumps leiddu til 700 dauðsfalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kári: leyfum alþingi að tala

Fallegt af Kára Stefánssyni að hugsa til alþingis á þessum síðustu og verstu.

Þingflokkar stjórnarandstöðunnar álykta, formenn stíga fram í fjölmiðlum og keyptar eru auglýsingar á samfélagsmiðlum með þessum skilaboðum: við viljum líka. Enginn hlustar.

Stígur nú lávarður veiruheims og farsóttavarna fram og segir ,,leyfið börnunum að koma til mín."

 


mbl.is Kári telur tímabært að Alþingi ræði sóttvarnareglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. nóvember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband