Pírata ofbýður falsfrétt Ágústar og RÚV

RÚV, auðvitað, bjó til einnar heimildar falsfrétt þar sem Ágúst Ólafur þingmaður Samfylkingar skáldaði lækkun veiðileyfagjalds.

Jafnvel píratanum Björn Leví ofbauð: ,,Ég þooooli ekki svona stjórn­mál." Kalla píratar þó ekki allt ömmu sína í framreiðslu falsfrétta.

RÚV sýnir sig enn og aftur áróðursmiðstöð sem löngu tímabært er að fari af fjárlögum.

 


mbl.is „Ómerkilegur blekkingaleikur hjá Ágústi Ólafi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálfræði, sagan og krónan

Viðskiptalífið er komið með kvíðaröskun. Ekki er lengur hægt að kenna háum vöxtum krónunnar um stöðu mála, var sagt á fundi Viðskiptaráðs.

Sálfræði var líka ofarlega í huga formanns Viðskiptaráðs sem veltir fyrir sér hvers vegna krónuhagkerfið malar gull þótt heiti eigi að við séum í samdrætti:

Er það vegna þess að peningastefnan er að virka? Eða er það vegna þess að kostir krónunnar eru loksins að koma fram? Endurspeglar þessi staða kannski, sálræna líðan þjóðarinnar, sem nú einkennist af varkárni og ákveðinni hræðslu um að hlutirnir séu verri en þeir eru?

Stóra samhengið er að fyrstu áratugi lýðveldisins misþyrmdum við krónunni með offramleiðslu á henni. Afleiðingin var verðbólga. Eftir þjóðarsáttina 1990 liðu ekki nema örfá ár þangað til bankakerfið var einkavætt og kappsamir bankastrákar tóku að stunda offramboð af lánum. Afleiðingin var hrunið 2008.

Ofan í kaupið stunduðu ómerkileg pólitísk öfl, Samfylking og Viðreisn, þann áróður að krónan væri sjálf uppspretta óstöðugleika. Árinni kennir illur ræðari; pólitíska kerfið var í lamasessi en krónan ekki sökudólgurinn.

Krónan virkar. Pólitík og bankamenn heldur síður. 


mbl.is Reiknar með vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband