Sunnudagur, 3. nóvember 2019
Klausturtal í stjórnarráðinu, femínískur misskilningur
Gulli utanríkis klaustrar. Nýjasta Báran segir:
Segir hún að ummælin séu birtingarmynd þess hve stutt samfélagið sé komið í femínískri baráttu, en að ráðherra hefði aldrei leyft sér að taka svona til orða ef um karlmann væri að ræða.
Almennt gildir um karlmenn að þeir klæmast meira þegar konur eru fjarri en þegar þær eru nærri. Kona sem ekki hefur þetta á hreinu veit ósköp lítið um karla. En líklega þess meira um femínisma.
Biðst afsökunar á kynferðislegri samlíkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 3. nóvember 2019
Loftslagsvá og himnaríki skrifræðisins
Stjórnlynt fólk tekur heimsendaspám um manngert veður fagnandi. Spárnar réttlæta víðtækt umboð þeirra stjórnlyndu að setja almenningi reglur um hvernig hann skuli haga lífi sínu.
Öflugir fjölmiðlar, mbl.is og RÚV á Íslandi, Guardian hjá engilsöxum, breiða út heimsendaspár undir yfirskriftinni við trúum.
Trúarsetningar eins og ,,Jörðin verður fyrir óafturkræfum skaða ef hnattræn hlýnun fer yfir 1,5°C" eru endurteknar eins og faðirvorið í kirkju. Rökin eru vísun í æðra yfirvald: ,,Samkvæmt lögmálum efnafræðinnar og eðlisfræðinnar er enn hægt að halda meðalhita í heiminum undir 1,5°C og takmarka hlýnun við 1,5°C."
Hvaða segja lögmál ,,efnafræði og eðlisfræði" um miðaldahlýskeiðið og rómverska hlýskeiðið, þar sem meðalhiti á jörðinni var 2-3 gráðum hærri á celsíus en núna?
Svokölluð vísindi sem eru grunnur heimsendaspádóma eru reikniformúlur þar sem forsendur gefa sér niðurstöðuna. Þetta er sama aðferðafræði og notuð er í stjörnuspeki um að vogin og ljónið eigi vel saman og svo framvegis.
700 vísindamenn og sérfræðingar hafna heimsendaspám um hlýnun af mannavöldum. Fá þeir áheyrn? Nei, rétttrúnaðarkirkja þeirra stjórnlyndu bannar andstæðar skoðanir. Þær eru villutrú.
Sannleikurinn er sá, segir einn af villutrúarmönnunum, Tim Ball, að hlýnun er góð, sérstaklega fyrir okkur sem búa á norðurslóðum. Ball er kanadískur. Jákvæðar afleiðingar hlýnunar verða aftur eyðilagðar af skrifræðisfólki eins og Guðmundi Inga og vinstri grænum.
Ég segi bara loksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)