Laugardagur, 29. desember 2018
Svindlað í þágu ritstjórnarstefnu
Ritstjórar móta ritstjórnarstefnu sem blaðamenn starfa eftir. Ef blaðamaður svindlar, skáldar efni, er líklegra að hann komist upp með það ef svindlið er í þágu ritstjórnarstefnunnar.
Íslenskir fjölmiðlar svindla reglulega í þágu vinstristefnu ritstjórnar.
Sannleikanum er hagrætt, nú síðast í Klausturmálinu, til að koma höggi á pólitíska andstæðinga.
Engum ritstjóra dettur í hug að segja af sér þótt upp komist. Á RÚV eru menn t.a.m. með lífstíðarábúð sama á hverju gengur.
Ritstjórar Spiegel leystir frá störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 29. desember 2018
Verkó logar í illdeilum
Byltingaröfl innan verkalýðshreyfingarinnar geta ekki beðið eftir því að komast í verkfallsátök í þeirri von að þau leysi úr læðingi óeirðir í samfélaginu.
Byltingarsinnar tala um sósíalisma og gul frönsk vesti og að ,,þjóðin sé að springa."
Allur þorri launþega er annarrar skoðunar. Skynsamlegir samningar, byggðir á verðmætasköpun í samfélaginu, er raunhæf leið sem byltingarfólkið vill ekki heyra á minnst.
Mikil óánægja með stöðu mála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)