Trump fær SDG-meðferð

Nú er það staðfest. Donald Trump er kominn í flokk með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

Það eru stórfréttir þegar kapparnir mæta ekki á fundi.

Alveg eins og hjörtum manna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu eru fjölmiðlar sjálfum sér líkir, hvort heldur í Washington eða Reykjavík.


mbl.is Trump mætir ekki í árlegan kvöldverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundarflokkurinn sameinar 3 stjórnmálaöfl

Stærsta stjórnmálaaflið utan alþingis er flokkurinn sem má kenna við Ögmund Jónasson, fyrrum þingmann Vinstri grænna. Ögmundarflokkurinn sameinar stóra hluta af þremur stjórnmálaflokkum: Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.

Staðfastir íhaldsmann eins og Halldór Jónsson taka undir með Ögmundarflokknum í stórum málum eins og hvort áfengi skuli selt í matvörubúðum og hvort innflutningur skuli leyfðir á smitsjúkdómum í kjöti.

Ögmundarflokkurinn er með alla burði til að verða stjórnmálaafl til höfuðs þeirri lausung og óreiðu sem tröllríður húsinu við Austurvöll.


mbl.is Myndi auka líkur á smitsjúkdómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband