Súnnar og sjítar vígbúast - kristinn lćrdómur múslíma

Tvćr meginfylkingar múslíma heita súnnar og sjítar. Sádi-Arabía er forysturíki súnna en Íran höfuđból sjíta. Súnnar eru langtum stćrri trúarhópur en sjítar, um 85 prósent múslíma eru súnnar en í kringum einn af hverjum tíu sjítar.

Sjítar er á hinn bóginn ađ eflast. Íran er nýkomiđ inn úr kuldanum í alţjóđasamfélaginu međ samningum viđ Bandaríkin og önnur stórveldi um kjarnorkuvopnaáćtlun sína. Í Írak eru sjítar viđ völd - en súnnar réđu ţar á tímum Husseins em Bandaríkin steyptu af stóli. Ţá er Assad Sýrlandsforseti alavíti, sem stendur nćrri sjítum.

Wahabismi, súnnaútgáfa af múslímatrú, er ráđandi í Sádí-Arabíu. Hryđjuverkasamtökin Ríki íslams leggja rćkt viđ sömu útgáfu af múslímatrú. Međ skefjalausum manndrápum í nafni trúarinnar er Ríki íslams búiđ ađ koma óorđi á ríkistrú Sáda.

Konungaskipti urđu í Sádi-Arabíu á síđasta ári og undirliggjandi er valdabarátta innan fjölmennrar konungsćttar. Sádar eru í verulegum efnahagsvandrćđum vega verđlćkkana á olíu sem er yfir 80 prósent af útflutningstekjum ţeirra.

Hvađ gerir trúarríki sem stendur höllum fćti? Jú, ţađ blćs í glćđur trúarhita til ađ safna liđi. Og einmitt ţađ gera Sádar og kalla á trúbrćđur sína í miđausturlöndum  sér til hjálpar.

Súnnar og sjítar eru í sömu stöđu og kaţólikkar og mótmćlendur í Evrópu í lok miđalda. Bókstafstrúin var ekki lengur límiđ í samfélaginu og nýjar veraldlegar hugmyndir skoruđu gamla heimsmynd á hólm.

Kristnir börđust innbyrđis á 16. öld og átökin náđu hámarki nćstu öld ţar á eftir, međ ţrjátíu ára stríđinu 1618-1648. Trúin sleppti klónum af samfélaginu en ađeins međ hávađa og látum. Galdraöldin var kveđjustuna alltumlykjandi kristin. Eitthvađ viđlíka er ađ gerast hjá múslímum.


mbl.is Sómalar slíta tengsl viđ Íran
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Skipta um ráđherra

Ísland á ekki ađild ađ Úkraínu-deilunni sem snýst um forrćđi yfir landi ţar sem auđmannaklíkur hafa látiđ greipar sópa frá lokum kalda stríđsins. Deiluađilar eru Bandaríkin og ESB annars vegar og hins vegar Rússar.

Ísland skuldar hvorki Bandaríkjunum né ESB ţjónkun viđ stórveldahagsmuni ţeirra sem reynt er á fölskum forsendum ađ klćđa í búning fullveldisbaráttu Úkraínumann.

Hagsmunir Íslands eru ađ halda vinsamlegum samskiptum viđ granna okkar og viđskiptaţjóđir. Utanríkisráđherra sem lćtur ófriđaröfl í Washington og Brussel villa sér sýn á hagsmuni Íslands á vitanlega ekki ađ sitja stundinni lengur í embćtti.


mbl.is Skiptir ekki um skođun
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Kannabis, áfengi og líf í fíkn

Samfélagiđ eyđir peningum í ađ hamla útbreiđslu fíkniefna sökum ţess ađ ţau eyđileggja líf neytendanna. Ráđandi hugmyndir eru ađ líf í viđjum fíkniefna er óćskilegt.

Í umrćđunni um hvort eigi ađ lögleiđa kannabisefni er stundum bent á ađ áfengi sé ekki síđur bölvaldur og spurt hvort ekki eigi ađ gilda sömu lög um bćđi efnin.

Áfengi er fylgifiskur menningarinnar, kom hingađ međ landnámsmönnum. Ýmsar leiđir voru reyndar í umgengni ţjóđarinnar viđ áfengi. Markađslausnir, ţar sem áfengi var allra er ţađ vildu hafa, algert bann og síđar, ţađ sem sátt varđ um, ađ verslađ skyldi međ áfengi í sérverslunum í eigu samfélagsins.

Kannabis er nýtt fíkniefni sem samfélagiđ berst gegn. Reynslan af áfengi kennir ađ aukiđ frambođ af fíkniefnum og betra ađgengi ađ ţeim eykur skađann sem ţau valda.

Líf í fíkn er ekkert líf heldur sjúdómsástand.


mbl.is Einangra sig og reykja kannabis
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 7. janúar 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband