Laugardagur, 8. september 2012
Á Ísland að hitti Grikki í dyragætt evrunnar?
Írland, Grikkland, Portúgal, Spánn og Ítalía eru lönd sem eru í kreppu vegna þess að evran er ósveigjanlegur gjaldmiðill sem tekur aðeins mark þýsku hagsveiflunni. Grikkir standa verst og þeim er spáð útgöngu næstu misserin.
Samfylkingin skilaði nýlega til Brussel þeirri stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands að lýðveldið vilji eindregið inn í evru-samstarfið.
Samfylkingarýðveldið Ísland hittir kannski í dyragættinni á rústum evru-hótelsins lýðveldið Grikkland, sem hóstandi og kjökrandi reynir að forða sér úr bálinu?
![]() |
Telur ástandið eiga eftir að versna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 8. september 2012
Prinsipp, æra og brask
Verslun með varnarhagsmuni Íslands var mönnum eins og Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannessen ekki að skapi; þar áttu prinsipp að gilda.
Brask með prinsipp leikur alla grátt. Það vita bæði Gunnlaugur Sigmundsson og forysta Vinstri grænna.
![]() |
Gunnlaugur ekki beðinn afsökunar að sögn Styrmis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 8. september 2012
Æra Gunnlaugs og ekki-afsökun Mogga
Bloggarinn Teitur Atlason endurvann fréttir Agnesar Bragadóttur blaðamanns á Morgunblaðinu um hvernig Gunnlaugur Sigmundsson komst yfir opinbert fyrirtæki, Kögun, og lagði þar með grunn að auðsöfnun sinni.
Kurteisa útskýringin á því hvernig Gunnlaugur komst yfir Kögun er að hann hafi ekki goldið þess að vera framsóknarmaður.
Gunnlaugur stefnir bloggaranum fyrir ærumeiðingar og vill hafa af Teiti fé ásamt því að endurheimta æruna.
Sók Gunnlaugs í málinu á hendur Teiti er að hanni hafi fengið afsökunarbeiðni frá Morgunblaðinu á sínum tíma með því að opnuviðtal birtist við hann í kjölfar frétta Agnesar. Styrmir Gunnarsson ritstjóri segir enga afsökunarbeiðni fylgja opnuviðtali í Morgunblaðinu. Þar með er sókn Gunnlaugs meira og minna ónýt.
Skáldskapur um afsökunarbeiðni sem ekki var eykur ekki virðingu Gunnlaugs. En kannski græðir Gunnlaugur nokkrar krónur af Teiti bloggara enda meiðyrðalöggjöfin íslenska skringileg í meira lagi. Krónurnar sem kunna að koma í vasa Gunnlaugs kaupa ekki æruna tilbaka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 8. september 2012
Darwin og sæmdin í Íslendingasögum
Hugmyndin um að Íslendingasögurnar séu öðrum þræði sögur um friðslit í samfélaginu er ekki ný af nálinni. Gunnar Karlsson rekur slíkar hugmyndir í yfirlitsritum sínum um Íslandssöguna. Norrænir víkingar herjuðu vítt og breitt um Evrópu á árabilinu 800 til 1100. Fyrir og eftir þann tíma eru norrænir menn ekkert sérstaklega ófriðsamir. Af því leiðir er testósteróns-skýringin nokkrum annmörkum háð.
Á hinn bóginn eru Íslendingar duglegri en aðrir norrænir menn að færa í letur frásögur af víkingum. Flestar Íslendingasögurnar fjalla um háöld víkingatímans, eða um 930 til 1030.
Ofbeldið í Íslendingasögum er nær aldrei tilgangslaust. Dæmið um Þorgeir Hávarsson í Fóstbræðrasögu sem heggur höfuðið af sauðamanni er stendur á spjalli við kunningja sína, slútir fram og stendur því vel til höggs, er gjarnan tekið sem frávikið frá reglunni um að ofbeldið sprettur ávallt af misklíð, öfund og metnaði.
Ofbeldi Íslendingasagna er mest á milli manna sem þekkjast. Deilur sem leiða til ofbeldis eru oft lítilfjörlegar: Í Eyrbyggju segir frá innansveitardeilum Breiðfirðinga vegna salernisaðstöðu.
Það er hæpið, svo ekki sé meira sagt, að lesa félagslegan darwinisma inn í Íslendingasögurnar, eins og gert er með þessum orðum
Þarna var margt ungra manna sem hver og einn reyndi að tryggja sér nógu mikið land, eiginkonu og fjölskyldu. Niðurstaðan var mjög hörð samkeppni sem braust oft út með ofbeldi. Víkingarnir höfðu mjög fágað lagakerfi, en á Íslandi höfðu þeir ekkert miðstýrt yfirvald til að fylgja því eftir.
Rauði þráðurinn í Íslendingasögum er sæmdin. Hún snýst ekki um að leggja undir sig lönd og tímgast heldur er sæmdin lífsafstaða sem menn voru tilbúnir að deyja fyrir.
![]() |
Víkingarnir illa liðnir heima fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)