Arion kætist með Jóni Ásgeiri

Bakhjarl Jóns Ásgeirs á Íslandi er Arion banki sem leyfir Baugsfjölskyldunni að stýra Högum. Jón Ásgeir notar veltufé Haga til að halda uppi fjölmiðlaveldi sínu í 365 miðlum. Arion hlýtur að kætast þegar Jón Ásgeir sannar hversu snjall fjármálamaður hann er og duglegur að tryggja sinn hag.

Slitastjórn Glitnis endasendist heimsenda á milli að sækja illa fengið fé Jóns Ásgeirs á meðan Arion meðhöndlar Jón Ásgeir sem viðskiptavin í úrvalsflokki.

Viðskiptavinir Arion banka hljóta að velta fyrir sér samfélagsvitund bankans.


mbl.is 585.648 bresk pund kyrrsett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugur keypti opinbera umræðu

Jón Ásgeir Baugsstjóri keypti opinbera umræðu. Ekki nóg það heldur reyndi hann að breiða yfir nafn og númer gagngert til að blekkja almenning. Hann keypti Fréttablaðið árið 2002 í skálkaskjóli lögfræðings og Gunnars Smára Egilssonar ritstjóra.

Þegar Gunnar Smári birti ásakanir vorið 2003  um að Davíð Oddsson hafi sigað lögreglunni á Baug birti hann slitrur úr fundargerðum Baugs til að gera fréttina trúverðugri. Almenningur fékk ekki að vita fyrr en löngu seinna að Baugur ætti Fréttablaðið.

Blaðamenn sem ganga í þjónustu Baugs stunda ekki blaðamennsku heldur eru þeir almannatenglar. Þegar þeir í ofanálag leyna almenningi hverjir borga brúsann stunda þeir svikráð gegn almannahagsmunum.


mbl.is Aldrei verið neitt launungarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptavæðing samfélagsins

Útrásin sneri á hvolf gömlum sannindum um að atvinnulíf eigi að þjóna samfélagi. Áróður auðmanna og meðhlaupara þeirra var að setja verðmiða á alla hluti og braska síðan til að skrúfa verðið upp. Ríkisstjórnir voru myndaðar utanum þessa hugsun, sbr. samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar 2007 sem var nefnd Baugsstjórnin. Meirihlutasamstarf sprakk ef staðið var gegn viðskiptavæðingunni. Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins sleit samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn haustið 2007 þegar borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins neituðu að févæða orkuauðlindir borgarinnar með samstarfi við Hannes Smára, Jón Ásgeir og kumpána í Geysir Green.

Viðskiptavæðing er góður bísness auðmanna. Eyjan segir frá hugdettu sem Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá fékk um að breikka Suðurlandsveg og fá tekjur af notkun vegarins. Í viðskiptamódelum er alltaf gert ráð fyrir hagnaði til einkarekstursins. Þegar auðmenn komast í samkrull með hinu opinbera er feitan gölt að flá.

Samfélagið framar viðskiptalífi ætti að vera kennisetning eftirhrunsins.


Bloggfærslur 30. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband