Prófessor í þvættingi

Prófessorar sem tala um málefni utan síns sérsviðs eru faglegir ómerkingar. Þórólfur Matthíasson prófessor í viðskipta- og hagfræðideild Háskólans er fjarri góðu faglegu gamni um leið og hann hættir sér út fyrir akademíuna, hvort heldur að hann sé álitsgjafi um Icesave eða EES.

Tilbúnar forsendur um afleiðingar af fyrirhuguðum breytingum á reglum Evrópusambandsins um ábyrgðarsjóði geta gefið hvaða niðurstöðu sem er - einmitt af því að forsendurnar eru tilbúnar.

Þórólfur þarf að svara grundvallarspurningum um heppilega stærð myntsvæða og hvaða forsendur myntsvæði þurfi að uppfylla til að teljast á vetur setjandi áður en hann gífuryrðist um að Íslandi geti ekki haldið uppi eigin mynt.

Þórólfur hafið í frammi ýmis skringileg viðhorf í Icesave-deilunni sem flest gengu út á að Ísland ætti að borga möglunarlaust ítrustu kröfur Breta og Hollendinga annars færi illa fyrir okkur. Við bognuðum hvorki né brotnuðum og erum hér enn að hlusta á prófessor í þvættingi.


mbl.is Gerir ómögulegt að vera í EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðsbrestir og hlutverk ríkisvaldsins

Hrunið var einn allsherjar markaðsbrestur. Ef til væri hugmyndafræðilegur valkostur við einkaframtak og markaðsbúskap væri búið að ríkisvæða nærfellt allan atvinnurekstur hér á landi. Vinstriflokkarnir sem sitja stjórnarráðið boða ekki endurhæfingu atvinnulífsins heldur treysta á viðurkennd borgaraleg úrræði.

Þegar heilbrigðisráðherra fær rökstuddan grun um markaðsmisnotkun í lyfjageiranum er það vitanlega skylda hans að kanna hvort lyfjaverslun á vegum ríkisins geti leiðrétt markaðinn. Einstök inngrip í atvinnulífið er ekki upphafið að sósíalisma eins og sumar pissudúkkur virðast halda.

Það stendur upp á  talsmenn frjálsrar verslunar og markaðslausna að gera grein fyrir ástæðum hrunsins og útleggja nýtt jafnvægi milli einkareksturs og ríkisrekstur og e.t.v. annars rekstrarforms.

Pissudúkkurnar haldi í sér á meðan.


Samfylkingin bitlingavæðir

Samfylkingin ræður kúlulánamann sem umboðsmann skuldara en gengur framhjá forstöðumanni Ráðgjafastofu heimilanna en sú stofnun verður lögð niður þegar umboðsmaðurinn tekur til starfa. Án tillits til jafnréttismála er þessi niðurstaða fáránleg. Sé haft í huga að gengið er framhjá vel hæfri konu til að ráða vanhæfan karl verður málið kaldrifjað misrétti.

Samfylkingin er gegnsósa tækifærismennsku. Sumir kynnu að ætla að jafnréttismál væru Samfylkingunni mikilvægari en svo að þeim mætti fórna í bitlingavæðingu. En svo er ekki.

 

 


mbl.is Ætlar að krefjast rökstuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýlendustefna ESB gegn Íslandi og Færeyjum

Ísland á margra sameiginlegra hagsmuna að gæta með Grænlandi, Færeyjum og Noregi. Hagsmunir Íslands og Evrópusambandsins eru aftur á móti í mörgum tilfellum ósamrýmanlegir. Evrópusambandið lítur á NV-Atlantshafið sem auðlindasvæði á líkan hátt og Evrópuþjóðir litu til skamms tíma á Afríku.

Nýlenduhugarfarið í Brussel kemur fram í yfirgangi gagnvart smáþjóðum.

Eina vörn smáþjóðanna er að standa saman utan Evrópusambandsins.


mbl.is Vilja viðskiptabann á Ísland og Færeyjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingarafsökun Björgólfs

Björgólfsfeðgar áttu Landsbankann og að auki margvísleg ítök í viðskiptalífi hér heima og erlendis. Feðgarnir voru nógu umsvifamiklir til að móta eigin viðskiptakúltúr. Björgólfur eldri var hokinn reynslu þegar hann keypti Landsbankann. Hafskipsmálið ætti að vera lexía mönnum með eðlilega dómgreind.

Björgólfsfeðgar stigu ekki varlega til jarðar í sínum viðskiptum. Þeir voru undir sömu sökina seldir og hinir auðmennirnir sem í tæpan áratug fóru ránshendi um íslenskt samfélag.

Björgólfur reynir að klína hrunmenningunni á Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn með því að skrifa einkavæðingu bankanna á þeirra reikning. Málflutningurinn sýnir hvaða mann Björgólfur geymir; honum varð ekki bumbult af því að njóta einkavæðingar bankanna og fékk meira að segja lánað hjá Búnaðarbankanum til að kaupa Landsbankann.

 


mbl.is Gagnrýnir einkavæðinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband