Samtök afneitara vilja Magma-afréttara

Ekki kemur á óvart að Vilhjálmur Egilsson tali enn útrásartungum. Hvorki Vilhjálmur né samtökin hans hafa gert upp við fortíðina þar sem óreiðufólkið stjórnaði ferðinni í efnahagslegri plastveröld. Magma er útrásarafréttari til að fresta timburmönnunum.

Á þingmannsárum sínum barðist Vilhjálmur m.a. fyrir því að sumartími yrði tekinn upp hér á landi til að auðvelda millilandaviðskipti. Framkvæmdastjórinn var trúverðugri í den.

 


mbl.is „Pólitísk leiktjöld“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magma á ís

Varfærin viðbrögð við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um Magma-málið og þjóðareign auðlinda sýnir að fólk treystir stjórninni mátulega. Undir venjulegum kringumstæðum er yfirlýsing ríkisstjórnarinnar nógu skýr til að vera fullnægjandi. Ekki verður betur séð en að fyrirætlun ríkisstjórnar sé að koma í veg fyrir að kaup Magma á HS Orku nái fram að ganga. Eðli málsins samkvæmt þarf orðalagið að taka mið af þeim mörgu lausu endum sem eru á málinu.

Tortryggnin sem ríkisstjórnin mætir er á hinn bóginn skiljanleg. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. er ekki þekkt fyrir hreinskilni.


mbl.is Grasrótin í VG ánægð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skapandi hugsun Össurar og ESB

Utanríkisráðherra óskar eftir samstarfi við Evrópusambandið til að  blekkja Íslendinga til fylgilags. Í grein 51. yfirlýsingarinnar segir að það kalli ,,á umtalsvert átak og skapandi hugsun" að finna hagsmunum Íslands stað í Evrópusambandinu.

Eins og fyrri daginn leikur Össur tveim skjöldum. Hér heima gagnrýnir hann kvótakerfið og vill það feigt. Í Brussel segir Össur að ekki megi hrófla við kerfinu þar sem það tryggi sjálfbæra nýtingu og sá hryggstykkið í efnahagskerfinu.

Skemmtilegasta setning yfirlýsingarinnar er eftirfarandi

Íslenska ríkisstjórnin stendur þétt að baki því ferli sem við nú hefjum.

Össur kann sannarlega skapandi hugsun.


mbl.is Tryggi forræði yfir auðlindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland, Tyrkland og ESB

Evrópusambandið er félagsskapur mótaður af meginlandsþjóðum vestast á þessum útskaga Asíu. Fyrirmyndin er sótt í ríki Karlamagnúsar sem gerði sér höfuðborg í Aachen skammt frá Brussel. Helsti keppinautur Karlamagnúsar í Evrópu var Býsans þar sem nú er Tyrkland.

Tyrkir sóttu um aðild að Evrópusambandinu fyrir 20 árum en er ekki hleypt inn. David Cameron forsætisráðherra Breta flytur ræðu í dag í Ankara þar sem hann fordæmir útilokun Tyrkja. Þjóðverjar og Frakkar standa gegn inngöngu múslimaþjóðarinnar.

Evrópusambandið útilokar Tyrki vill gjarnan innlima Ísland í sambandið. Ísland á það sameiginlegt með Tyrkjum að tilheyra ekki kjarnasvæði Evrópu. Munurinn á misjafnri viðtöku í Brussel er að Evrópusambandið lítur svo á að Ísland er viðbót við nýja Evrópuríkið en Tyrkland í krafti stærðar tæki sæti við hlið Frakka og Þjóðverja sem forysturíki Evrópusambandsins.

Á dögum ríkis Karlamagnúsar  fluttu vestnorrænir menn til eyju á miðju Atlantshafi. Þar búa þeir enn og vilja sem minnst vita af valdabrölti á meginlandi álfunnar.

 


Útlendingar efast um heilindi Össurar

Lygi til heimabrúks, um að Ísland væri á leið í könnunarviðræður, og lygi á erlendum vettvangi, t.d. að þjóðin standi að baki umsókn Samfylkingar, er starfsaðferð Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Hér heima hefur Össuri orðið ágengt og á sæti í ríkisstjórn.

Samkvæmt fréttum eru starfsbræður Össurar teknir að efast um heilindi hans.

Líklega eru þrátt fyrir allt takmörk fyrir hversu stjórnmálamenn komast langt á lygavaðli.


Bloggfærslur 27. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband