Fimmtudagur, 1. júlí 2010
Skoðanakúgun í Samfylkingunni
Einn af hverjum fimm kjósendum Samfylkingarinnar er andvígur aðild að Evrópusambandinu. Þessi hópur á sér engan talsmann í forystu flokksins þar sem efasemdir eru þaggaðar niður til trufla ekki gagnrýnislausa ESB-dýrkun.
Í Sjálfstæðisflokknum er minnihlutahópur sem talar fyrir ESB-aðild og þingmaður flokksins telst þar með. Í Vg reynir Árni Þór Sigurðsson að tóna sjónarmið fimmtungs fylgjenda flokksins sem vilja aðild. Framsóknarflokkurinn státar af minnihlutaþingmönnum, Guðmundi Steingríms og Siv Friðleifs, sem bæði vilja inn en almennt er þingflokkur sem flokkur á móti. En í Samfylkingunni heyrist ekki hósti né stuna frá þingliði eða forystu sem ekki fylgir flokkslínunni.
Skoðanakúgun Samfylkingarinnar er ekki síst merkileg í ljósi samræðustjórnmála og lýðræðisáhuga.
![]() |
Aðeins fjórðungur vill í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 1. júlí 2010
Þjóðleg íhaldsstefna í stórsókn
Fullveldi, ábyrgð og ráðdeild er þríein stjórnmálastefna sem sækir í sig veðrið og verður ráðandi næstu árin. Sjálfstæðisflokkurinn annars vegar og hins vegar Vinstrihreyfingin grænt framboð eru farvegir fyrir stjórnmálastefnu eftirhrunsins. Eftir ævintýramennsku útrásarinnar og pólitískri fíflsku leitar þjóðin í grunngildin.
Evrópusambandsumsóknin er pólitískt framhald af fjármálaútrásinni og á sem slík enga möguleika að laða til sín stuðning almennings. í utanríkismálum mun þjóðin gefa sér tíma til að ráða ráðum sínum og æðibunugangur afþakkaður.
Hrunið, aðdragandi og eftirmál, mun skilgreina stjórnmálaumræðuna til langrar framtíðar.
Fimmtudagur, 1. júlí 2010
Krugman: Ísland rústar kreppuríki ESB
Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði Paul Krugman vekur athygli á því í dálk sínum í New York Times að Ísland með sína krónu og fullveldi óskert gengur mun betur að sigrast á efnahagsvandanum en kreppuríkjum Evrópusambandsins Eistlandi, Lettlandi og Írlandi.
Kreppan á Íslandi var dýpri og erfiðari en á byggðu bóli, segir Krugman. Hann þakkar sjálfstæðum gjaldmiðli og óhefðbundnum úrræðum að Íslendingum tókst betur upp en ESB-ríkjum að takast á við kreppuna.
Fullvalda Ísland með eigin mynt er hornsteinn byggðar hér á landi. Það sjá allir nema Samfylkingin og fámenn auðrónadeild sjálfstæðismanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 1. júlí 2010
ESB-flokkar tapa
Samfylkingin, sem vill skilyrðislausa aðild að Evrópusambandinu, tapar fylgi. Framsóknarflokkurinn, sem vill sækja um með stífum skilyrðum, tapar fylgi. Flokkarnir sem eru með fullvalda Ísland á dagskrá bæta við sig fylgi.
Þjóðarstraumurinn er gegn ævintýrum á erlendum vettvangi, hvort heldur efnahagslegum eða pólitískum.
Umsóknina um aðild að Evrópusambandinu ber að taka strax tilbaka.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur í sókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)