Dagur fyndni

Samtöl stjórnmálamanns við framboð sem hefur ísbjörn í Húsdýragarðinum á dagskrá og vill taka róna í fóstur hlýtur að vera skemmtilegt - einkum ef maður er búinn að tapa sjálfsvirðingunni og verið niðurlægður í kosningum.

Dagur B. ætlar að vekja Reykjavík. Líklega með hlátrasköllum.

Spurningin er hver hlær á kostnað hvers?


mbl.is Trúnaðarsamtöl á leynifundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

23% heimila í erfiðleikum, 77% í lagi

Nýjustu tölur um stöðu heimilanna segja að rúmur fimmtungur þeirra sé í vandræðum með fjármálin. Af þeim eru að minnsta kosti hluti krónísk vandræðaheimili þar sem fjármálin eru í ólagi hvort heldur í góðæri eða hallæri.

Það ætti ekki að vera ríkisvaldi og bönkum ofraun að bjóða sanngjarnar lausnir handa þeim sem sannanlega eru fórnarlömb hrunsins s.s. fólki sem keypti íbúðarhúsnæði á óheppilegum tíma.

Það er ástæða til að taka þeim tíðindum fagnandi að tæp 80 prósent heimila er með sína mál í lagi. 


mbl.is Staða heimilanna afar slæm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálaskrípó í boði Samfylkingar

Samfylkingin heldur pólitíska farsanum í Reykjavík gangandi með auglýstum leynifundum með Besta flokknum. Jón Gnarr fékk Dag B. með sér í ljósmyndapósu til að taka við sápukúltþáttum á mynddiski. Við það tilefni er haft eftir kosningastjóra grínflokksins

Búast má því að viðræðurnar fari nú fyrst á flug, þegar fulltrúi Samfylkingarinnar hefur fengið þættina Wire til áhorfs. 

Almenningur er líklegur til að virða það við Samfylkinguna að hífa íslensk stjórnmál úr ræsinu og yfir í fáráðlingaveröldina.

 


51% Breta telur ESB slæman kost, 42% vilja út

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun telur 51 prósent Breta að þátttaka í Evrópusambandinu hafi fleiri galla en kosti. Um  37 prósent segja kostina fleiri en galla. Könnunin sýnir að 42 prósent Breta myndu í þjóðaratkvæðagreiðslu greiða með tillögu um að Bretland segði sig úr Evrópusambandinu. Um 35 prósent myndu greiða atkvæði með áframhaldandi aðild.

Bretland er ekki hluti af evrusvæðinu og líkur eru á að þær ráðstafanir sem verða gerðar hjá þeim 16 ESB ríkjum sem hafa evru verði til þess að Bretar fjarlægist Evrópusambandið enn frekar.

Til að ná tökum á fjárlagahalla einstakra evru-ríkja verða viðkomandi ríki að gangast undir sameiginlega fjárlagagerð. Eitt skattríki styttir leiðina í átt að einu Evrópuríki.


Blóðlaust djók

Aumingjagrín Besta flokksins náði eftirkosningahámarki á mánudag þegar Samfylking og Dagur á barmi taugaáfalls efndu til meirihlutaviðræðna við sjálfskipuðu fíflin. Brandarinn um auglýstu leynifundina var sniðugur en endist ekki nema daginn eða svo.

Í hálfan annan sólarhring er ekkert fyndið komið frá brandaraflokknum. Fólk sem hafi fyrir því að gefa Gnarristum atkvæði sitt á betra skilið.

Er ekki öruggt að í hádegisfréttum komi grín frá Besta flokknum?


Bloggfærslur 2. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband