50 ára söguvitund aðildarsinna

Söguvitund Sjálfstæðra Evrópumanna takmarkast við síðustu hálfa öld eða svo. Dæmin sem tilfærð eru um alþjóðlega samninga eru öll yngri en lýðveldisstofnunin sem gerði þessa samninga mögulega. Lýðveldisstofnunin var lokatakmark þjóðfrelsisbaráttunnar.

Aðild að ESB grefur undan fullveldinu með því að flytja forræði okkar mála til Brussel. Síðast misstum við forræði okkar mála með Gissurarsáttmála við Hákon gamla Noregskonung. Það tók okkur 650 ár að fá fullveldið tilbaka.

50 ára söguanalísa handa þjóð sem er þúsund ára og rúmlega það er heldur klén frammistaða. Aðildarsinnar eru eins og áður með brækurnar á hælunum.


mbl.is „Verði þjóð meðal þjóða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrafjörður í gær, óupplýst ESB-afstaða í dag

 Í gær misfór formaður Samfylkingarinnar með fæðingarstað Jóns Sigurðssonar. Í dag skrifar framkvæmdastjórn flokksins texta þar sem Samfylkingin gortar sig af óupplýstri ákvörðun um ESB-aðild.

Lítum á þessa setningu í ályktun framkvæmdastjórnarinnar

Íslenska þjóðin getur einungis tekið upplýsta ákvörðun um hvort aðild þjóni hagsmunum Íslendinga þegar samningur liggur fyrir. 

Í næstu málsgrein segir 

Samfylkingin styður aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Það liggur enginn samningur fyrir og því getur Samfylkingin ekki hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar flokkurinn sagðist styðja aðild Íslands.

Samfylkingin er sannkallaður ruslflokkur íslenskra stjórnmála, frá toppi til táar.

 


mbl.is Ákvörðunin veigamikið skref
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn í forystukreppu

Afleiðing af hikandi og höktandi uppgjöri formanns Sjálfstæðisflokksins við auðrónadeildina er óðum að koma í ljós. Eftirspurn eftir næst æðsta embætti flokksins er nær engin. Auðrónadeildin sem heldur hlífiskildi yfir Guðlaugi Þ. Þórðarsyni ofurstyrkþega og verkfæri auðmanna er með yfirhöndina í flokknum.

Bjarni Benediktsson formaður fer undan í flæmingi og treystir sér ekki til að takast á við kröfu um uppgjör við útrásararfleifðina. Formaðurinn lætur sér vel líka að fáeinar eftirlegukindur frá 2007 haldi flokknum í heljargreipum. Kómískir tilburðir þessa hóps til að hnykla vöðvana birtust meðal annars í því að gera Árna Þór Sigfússon fjárfesti og bæjarstjóra Reykjanesbæjar að formannskandídat. Hugmyndin toppaði forsetaframboðspælingar Ámunda umba hér um árið.

Forystukreppa í móðurflokki íslenskra stjórnmála veit á umbrot á hægri kanti stjórnmálanna.

 


mbl.is Ætlar ekki í varaformanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan - Evran: 3-0

Launamenn í Grikklandi, Spáni og Írlandi búa við evru og beinar launalækkanir. Stjórnvöld í þessum löndum eiga ekki annan kost en að segja verklýðshreyfingunni stríð á hendur og breyta launatöxtum til lækkunar. Líkleg afleiðing er verðhjöðnun í þessum efnahagskerfinu og atvinnuleysi á annan tug prósenta.

Hér á Íslandi lækkar gengi krónunnar sem jafnar byrðar vegna efnahagshrunsins. Ríkir Grikkir, Spánverjar og Írar geta flutt evrurnar sínar í öruggt skjól og komið sér undan því að borga sinn hluta í endurreisninni. Hér á Íslandi sér blessuð krónan til þess að allir taki þátt - gjaldeyrishöftin eru til þess.

Sérstakur krónubónus er að Hæstiréttur dæmdi myntkörfulán ólögleg. Krónan er þjóðargersemi.

 


mbl.is Funda um gengistryggð lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómur Hæstaréttar eykur líkur á stjórnarskiptum

Dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána er stærsta efnahagsaðgerð eftir hrun. Um 100 - 200 milljarðar króna munu færast frá lánveitendum til lántaka. Eftir þessa efnahagsaðgerð lækkar hlutfall íslenskra heimila á vonarvöl og pólitískur þrýstingur á ,,björgum heimilunum" hverfur.

Skjaldborg heimilanna er helsta slagorð ríkisstjórnarinnar og meginástaæða fyrir tilveru hennar. Þegar Hæstiréttur er búinn að bjarga heimilunum hverfur tilverugrundvöllur ríkisstjórnarinnar.

Málin sem komast í forgrunn eru þessi: ESB-umsóknin, niðurskurður í opinberum rekstri, stjórnkerfisbreyting Jóhönnu Sig., og virkjanamál. Allt eru þetta mál sem kljúfa ríkisstjórnina. Krafan um nýjar kosningar verður háværari og líkur á að þær fari fram hérna megin næstu áramóta.


mbl.is Lausir endar þrátt fyrir dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband