Össur biðlar til hrunverja í XD

Össur Skarphéðinsson, ókrýndur foringi Samfylkingarinnar, sagðist í þingumræðum í dag æ oftar vera sammála Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins. Opinberar meðhársstrokur Össurar á Sjálfstæðisflokknum eru til marks um þreytuna í stjórnarsamstarfinu.

Össur telur sig vera í góðu talsambandið við hrunverjadeild Sjálfstæðisflokksins sem telur menn eins og Ólaf Stephensen, Ara Edwald á baugsmiðlum, Þór Sigfússon fyrrum Sjóvástjóra og Guðlaug Þ. Þórðarson þingmann.

Hrunverjarnir í Sjálfstæðisflokknum eiga tvennt sameiginlegt með Össuri. Annars vegar ESB-aðild og hins vegar að halda lífinu í baugsmiðlunum sem skapar áróðursvígstöðu í þjóðfélagsumræðunni.

 


mbl.is Sterkari skilningur en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótsögnin í ESB-umsókninni; aðild á undanþágum

Sannfæringin verður æ máttlausari fyrir umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Aðildarsinnar eins og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra viðurkenna óheyrilegan kostnað við umsókn; að Ísland muni greiða meira til ESB en það fær tilbaka; fiskveiðar munu ekki verða stundaðar á Íslandi nema með leyfi ESB og svo framvegis.

Málsbætur Össurar og aðildarsinna er að Ísland muni fá stórglæsilegar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins.

Aðildarsinnar vilja aðild á undanþágum. Vinstri stjórnin á Íslandi er eina ríkisstjórnin sem hefur reynt að reka áróður fyrir aðild þjóðar sinnar að ESB upp á þau býti að afbragðsgóðar undanþágur fáist frá reglum sambandsins sem ætlunin er að ganga til liðs við.

Einboðin niðurstaða blasir við: Okkur hlýtur að vera betur borgið utan sambands sem við ætlum ekki í nema með afslætti frá meginreglum sambandsins.


mbl.is Kostnaður við landbúnaðarkerfið mun aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskriftir auka líkur á nýju hruni

Afskriftir án gjaldþrota auka líkurnar á nýju hruni. Gjaldþrot er lexía um afleiðingar óráðsíu sem verður að læra. Þeir sem búa við sértækan vanda, s.s. vegna húsnæðiskaupa þegar verð var í hæstu hæðum, eiga að fá sanngjarna lausn á sínum vanda. Á hinn bóginn er út í bláinn að fella niður skuldir vegna Range Rover.

Gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja er leið niðurstaða ömurlegs tímabils sem kennt er við útrás.

Til að draga úr líkum á endurtekinni fjármálafirringu verður að keyra lærdóminn heim. Að öðrum kosti er hætt við að hugarfar fjárglæfra verði ríkjandi á ný.


Makastofnun ríkisins

Félagsmálaráðuneytið í samvinnu við ráðuneyti dóms- og mannréttinda hyggst setja á laggirnar Makastofnun ríkisins sem fær það hlutverk að taka við mökum sem ekki standa undir væntingum. Árni Páll félagsmálaráðherra segir ríkið bera ábyrgð á misheppnuðum hjónaböndum enda eru hjónavígslur á vegum opinberra stofnana.

Hér að ofan eru rök fyrir ábyrgð ríkisins á frjálsu vali einstaklinga færð af bílalánum yfir á hjúskap. Rökvilla ráðherra kemur berlega í ljós.

Bílalánin eru á ábyrgð þeirra einstaklinga sem þau tóku.


mbl.is Lán dýrra bíla afskrifuð mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband