Vinstristjórnin ræður ekki við fylgið sitt

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna er með undirstöðu í búsáhaldabyltingunni. Vinstriflokkarnir lögðu til pólitískt eldsneyti í þjóðfélagsólguna eftir hrun og lögðu sig fram um að magna ófriðinn. Þegar teprulega miðaldra mussuliðið mætir núna byltingarbörunum skammast það sín fyrir fólkið sem kom þeim til valda.

- Okkar hús, sungu mótmælendur, og voru ekki par ánægðir með hertöku vinstriflokkana á húsi fólksins.

Samfylking og Vinstri græn brenna í báða enda. 

 


mbl.is Þing fyrir luktum dyrum vegna óláta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Írar láta evruna róa

Barnfóstrurnar frá Brussel og Berlín eru komnar. Við sitjum í leikgrindinni og getum hringlað með gullin okkar en ákveðum hvorki hvenær ljósin verða slökkt né hvað verður í morgunmat. Á þessa leið skrifar Kevin Myers um endalok írsks sjálfstæðis.

Evran er Írum spennitreyja og fangaverðirnir, barnfóstrurnar, afsakið, frá Brussel og Berlín sjá til þess að þeir geta sig hvergi hrært.

Megan Green bendir Írum á leið út úr vandanum. Hún skrifar í Financial Times að Írar muni hvort eð er fara í gjaldþrot, skuldirnar eru einfaldlega of miklar; raunlaun mun lækka og bankarnir þurfa endurfjármögnun. Lánið frá Evrópusambandinu og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum mun engu breyta um þessar staðreyndir - aðeins fresta þeim.

Kosturinn við það að láta evruna róa, segir Green, er að kreppan varir skemur. Eftir stuttan óreiðutíma mun vöxtur taka við sér og Írland komast á sömu braut og Ísland. (Ok, rétt, síðasta setningin kemur ekki frá Green heldur síðuhaldara.)


Milljarðar afskrifaðir, lágir vextir; næsta afsökun takk

Eyðslumestu Íslendingarnir hafa fengið 50 milljarða króna afskrifaðar. Vextir eru fimm prósent. Mánuð eftir mánuð er afgangur af viðskiptum við útlönd, gengið styrkist og verðbólga helst lág. Allar forsendur eru fyrir kröftugri efnahagsstarfsemi.

Ástæðan fyrir því að efnahagskerfið höktir enn og skröltir er að ónýt fyrirtæki starfa enn á markaði í skjóli banka sem er enn útrásarsmitaðir. Ormahreinsun atvinnulífsins er ekki yfirstaðin vegna þess að ríkisvaldið hefur tregðast við að gefa almennar meginlínur um endurreisnina.

Hvorki samtök afneitara, SA, með Vilhjálm baugssmurða í broddi fylkingar né ríkisstjórnin munu kannast við sína ábyrgð á seinkun efnahagsbatans. Vanheilagt bandalag útrásarafganga og ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. er komið með næstu afsökun.

Icesave.


mbl.is 27 milljarðar afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HS-Orka í höndum Magma verði þrotabú

Útrásarafgangarnir í samvinnu við Ross Beaty i Magma og gjaldþrota Reykjanesbæ reyna sem fyrr að láta okkar standa frammi fyrir orðnum hlut. Viðrinin þykjast búin að kaupa HS-Orku en það fyrirtæki er aðeins til að nafninu. Hitaveita Suðurnesja skipti rekstrinum í tvennt í fjármálafyllerísæfingu en aðeins í orði en ekki á borði.

Græðgiseðjótin á bakvið atlöguna að auðlindum þjóðarinnar vilja ekki skilja pólitískar yfirlýsingar ríksstjórnarinnar um að það eigi að vinda ofanaf kaupum Magma á HS-Orku. 

Orkumál lúta laga og regluverki sem hið opinbera á að nota til að keyra Magma HS-Orku í þrot.


mbl.is Magma lýkur kaupum á HS orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnlagaþingið sundrar

Mótsögnin sem felst í miklum áhuga á sæti í stjórnlagaþingi, yfir 500 framboð, og sáralitlum áhuga almennings, rétt um þriðjungur mætti á kjörstað, undirstrikar sundrungarhugsunina á bakvið hugmyndina. Alþingi er vettvangur stjórnmála íslensku þjóðarinnar og hefur verið frá endurreisn þess fyrir 150 árum.

Sundrungaröflin á alþingi, Samfylkingin þar fremst í flokki, bjuggu til og hönnuðu stjórnlagaþing til að sniðganga hefðbundnu stjórnmálin.

Stjórnlagaþingið verður minnisvarði um lágkúru stjórnmálastéttarinnar á Íslandi þar sem alið er á sundurþykkju meðal þjóðarinnar.


mbl.is 44% fengu ekki fulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband