Seðlaprentun og draumur Dolla

Þýska hagkerfið er agað og með innbyggða andstyggð á verðbólgu. Weimar-lýðveldið fuðraði upp á verðbólgubáli. Dolli gerði sér mat úr því með kunnum afleiðingum. Í evru-samstarfinu fara Spánverjar fyrir þeim sem vilja að Evrópski seðlabankinn prenti seðla til að auka peningaflæði í botnlausa hít gjaldþrota bankakerfis. Hagspekin er fengin frá Bandaríkjunum þar sem rökin eru þau að verðbólga sé betri en verðhjöðnun.

Þjóðverjar eru á annarri skoðun og samkvæmt fréttum standa þeir á bremsunni. Fleira hangir þó á spýtunni en verðbólga. Þjóðverjum var lofað þegar þeir fórnuðu þýska markinu fyrir sameiginlega mynt með Frökkum (og nokkrum smáríkjum) að Þýskaland yrði ekki látið bera skuldir annarra ríkja. Hér stendur hnífurinn í kúnni.

Til að evran haldi velli verða Þjóðverjar að skrifa upp á skuldir Grikkja, Íra, Portúgala, Spánverja og annarra sem eru með evru sem lögeyri. Og það er einfaldlega óhugsandi að Þjóðverjar samþykki slíkt skuldabandalag nema að fá draum Dolla uppfylltan um að Evrópa lúti þýsku forræði.


Samfylkingarvædd utanríkisþjónusta

Ráðherra utanríkismála er annálaður klækjastjórnmálamaður sem einskins svífst til að ná fram markmiðum sínum sem öll lúta að því að Össur Skarphéðinsson haldi völdum. Embættismenn í utanríkisráðuneytinu eiga að þjóna lýðveldinu en ekki dyntum ráðherra.

Á Evrópuvaktinni og í leiðara Morgunblaðsins í dag er vakin athygli á hversu langt embættismenn virðast tilbúnir að ganga til að vera í pólitísku liði ráðherra.

Hagmunum embættismanna er ekki borgið með því að þeir ,,setjist upp í sófa" hjá ráðherra.


Heimilisvandræðin í Evrópu

Ef heimili sem stendur í skilum með öll sín lán, eyðir aldrei um efni fram og álítur sparnað til dyggða er látið bera ábyrgð á þekktu óreiðuheimili þar sem lán eru í vanskilum og sparnaður óþekkt hugtak hver verður niðurstaðan? Jú, annað tveggja, að bæði heimilin fari í þrot eða að ráðdeildarheimilið yfirtekur fjármál óráðsíufólksins.

Þorpið sem heitir Evrópusambandið  stendur frammi fyrir þeim heimilsvanda að nokkur heimili þar sem germönsk mál eru töluð s.s. það þýska, austurríska, hollenska, danska og sænska eru með heimilisbókhaldið í lagi og bjartar framtíðarhorfum. Önnur heimili sem tala rómönsk mál, t.d. það spænska, ítalska og portúgalska eru með allt niðurum sig og verða að segja sig til sveitar á næstunni.

Germönsku heimilin standa frammi fyrir tveim kostum. Í fyrsta lagi að yfirtaka skuldir rómönsku óreiðuheimilanna og í leiðinni að taka yfir stjórn heimilisbókhaldsins. Í öðru lagi að leyfa gjaldþrot rómönsku heimilanna með ófyrirséðum afleiðingum fyrir Evrópuþorpið.

Í dag kemur út skýrsla frá hugveitunum Legatum Institute og American Enterpries Institute sem spáir endalokum Evrópuþorpsins innan þriggja ára.


 


mbl.is Skuldatryggingarálagið á niðurleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin og glæpafélögin

Útrásarfélögin íslensku voru glæpafélög. Verðið á glæpafélögum er eðlilega hærra en verðlagning á félögum með löghlýðið viðskiptamódel. Glæpafélögin teljast hafa heimild til að brjóta lög og stunda óáreitt viðskiptahætti sem ekki eru leyfðir í siðuðum samfélögum.

Ríkisstjórnin hefur ekkert gert til að stemma stigu við glæpavæddum atvinnurekstri á Íslandi. Þess vegna sitja bankar uppi með gjaldþrota félög er hafa verðmiða glæpareksturs. Sjálfur Landsbankinn, sem er í eigu ríkisins, styður glæpavæddan rekstur 365-miðla og sturtar peningum í baugshjónin sem eiga félagið. Siðlausa viðskiptahætti sína rökstyður Landsbankinn með því að glæpafélög eru best komin í höndum dæmdra afbrotamanna sem kunna að fullnýta heimildir til glæpa. Landsbankinn fjármagnar þar með tilraun til að gera Ísland að ræningjasamfélagi.  

Ríkisstjórnin þarf að gjaldfella rekstur glæpafélaga með því að setja lög sem reisa skorður við glæpafélögum. 


Viðskipti og glæpir

Á útrásartímum stunduðu íslenskir auðmenn viðskipti ekki sem rekstur heldur glæpaiðju. Viðskiptamódel auðmanna gerði ráð fyrir stórfelldum blekkingum, m.a. innherjaviðskiptum, fölsuðum reikningum, uppskrúfaðri viðskiptavild og skapandi bókhaldi.

Þótt auðmenn séu fæstir enn að störfum eru meðhlauparar þeirra virkir út um allar trissur, m.a. í fjármálastofnunum. Endurhæfingin á íslensku viðskiptalífi hefur ekki farið fram.

Ríkisstjórnin ber fulla ábyrgð á því að gerspillt viðskiptalíf hefur ekki verið ormhreinsað. Ríkisstjórnin hefur ekki einu sinni sett fram stefnu sem gæti vísað veginn úr spillingarfeninu. Í slíkri stefnu fælist valddreifing þar sem stærri fyrirtæki yrðu brotin upp, stífari reglur settar um eignatengsl og aukið gagnsæi tryggt.


mbl.is Tilboðin í Haga undir væntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband