RÚV á bæn með Steingrími J.

Stjórnmálafrétt dagsins er uppnám í þingliði Vinstri grænna þar sem líkur eru á að fleiri en Lilja Móses þvoi hendur sínar af fjárlgafrumvarpi ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. Fréttastofa RÚV gerðist spunadeild í Moskvu-armi Vg og afgreiddi málið sem smáfrétt.

Komi á daginn að fleiri en einn þingmaður Vinstri grænna sitji hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefur fréttastofu RÚV dreitt inni.

Sameinuð bæn RÚV og Steingríms J. er að uppreisnin í þingliði Vg hjaðni áður en faglegu og pólitísku orðspori verði skolað ofan í ræsið.


2007-rök; græðum á löstum

Framkvæmdastjóri hótelkeðju á Íslandi vill reka spilavíti og teflir fram þeim rökum að ríkið fái 700 milljónir í skatttekjur. Framkvæmdastjórinn blæs á afstöðu ríkisvaldsins að fjárhættuspil spilli lýðheilsu og segir spilavíti rekin erlendis og því hljóti það að vera í lagi hér.

Útlönd eru stór og þar má margt misjafnt finna s.s. löglegt vændi, frjálsa skotvopnaeign, lögleg eiturlyf og svo framvegis. Hvert samfélag reisir skorður við athöfunum þegnanna í samræmi við venjur og hefðir. Á Íslandi höfum við kosið að vera án spilavíta. 

Tilboð um að leggja af bann við spilavítum af því við græðum peninga á afnáminu er siðleysi í takt við hugarfar sem kennt er við 2007. Framkvæmdastjóri hótelkeðjunnar gæti næst komið með tilboð til okkar að lögleiða vændi af því það gæfi svo vel í aðra hönd.  


mbl.is Icelandair hótel vilja reka spilavíti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meginreglur og hagkvæmni í Icesave

Vextir eru lægri í fyrirliggjandi samningi um Icesave en í þeim sem hafnað var í þjóðaratkvæðagreiðslu í mars. Að því slepptu virðast samningarnir í meginatriðum sambærilegir. Áhættuþættir s.s. vegna innheimtu í þrotabú Landsbanka og gengisþróunar eru allir á okkar herðum. Þessa áhættu þarf að vega og meta á móti þeirri áhættu sem felst í að hafna kröfum Breta og Hollendinga um að bæta þeim ríkisábyrgð sem þeir einhliða settu á Icesave-reikninga Landsbankans.

Á bakvið býr spurningin um meginreglur og hagkvæmni. Eigum við í nafni hagkvæmni að undirgangast sátt og reiða fram tugmilljarða til að losna við ólögmætar kröfur eða standa keik á rétti okkar?

Björn Bjarnason ræðir á Evrópuvaktinni samhengið sem er á milli eymdarafstöðu ríkisstjórnar Íslands gagnvart ofríki Breta og Hollendinga og umræðunnar í Evrópu um banka sem fara sér geyst, tapa stórfé, og ætlast til að skattgreiðendur borgi brúsann.


mbl.is Vextirnir eina stóra breytingin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

90 prósent afskriftir til Kaupþingsfólks

Slitastjórn Kaupþings sendir kolröng skilaboð út í samfélagið með því að gefa yfirmönnum fallna bankans stórafslátt á skuldum. Til að bæta gráu ofan á svart er beinlínis tekið fram að enginn verði keyrður í gjaldþrot vegna kúlulánanna.

Ef regla slitastjórnar Kaupþings væri almenn regla í samfélaginu yrði fólk beinlínis hvatt til að skuldsetja sig upp í rjáfur og helst rúmlega það vegna þess að í boði væri 90 prósent afskriftir ef illa færi. Til viðbótar fengi fólk friðhelgi frá gjaldþroti.

Kaupþingsfólkið sem hér um ræðir var ekki hópur sakleysingja sem ekki vissi hvert stefndi. Um þetta fólk eiga að gilda almennar reglur en ekki sérúrræði.


mbl.is Kaupþingsfólk semur við slitastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband