Þriðjudagur, 30. nóvember 2010
Samfylkingin er sundrungarafl
Samfylkingin er flokkur ófriðar og sundurþykkju. Flokkurinn elur á andúð milli landsbyggðar og þéttbýlis; þjóðkirkju og almennings; skuldara og lánveitenda; kjósenda og stjórnmála. Samfylkingin er stofnuð sem hugsjónalaus valdatökuflokkur. Hertækni flokksins er að sá fræjum óánægju og upplausnar. Með þeim hætti er grafið undan tiltrú og trausti í samfélaginu. Samfylkingin þrífst í þessu umhverfi enda prisipplaus flokkur sem tekur sér sérhverja þá stefnu sem hentar til valda hverju sinni.
![]() |
Meirihluti fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 30. nóvember 2010
Blaðamaður Baugs
Stjórnlagaþing Samfylkingarinnar er með blaðamann Baugs í oddvitastöðu. Þorvaldur Gylfason skrifaði og skrifar enn lygadálka í Baugstíðindi þar sem hann mærir útrásina og hellir skolpi yfir þá sem reyndu að koma böndum á viðrinin. Í frægum dálki skáldaði Þorvaldur sögu um sjálfan sig og ónefndan heimildarmann sem sagði honum þá sögu að aðförin að Jóni Ásgeiri Baugsstjóra hafi verið skipulögð af Davíð Oddssyni.
Lögreglan kallaði Þorvald til sín í skýrslutöku og þá bar hann við heimildavörn blaðamanna.
Þorvaldur sómir sér vel sem Baugsfylkingarmaður á stjórnlagaþinginu.
![]() |
Þing allrar þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 30. nóvember 2010
Þjóðin í hlutfallinu 30/70
Þrjátíuprósent þjóðarinnar vilja fá almenna niðurfærslu skulda og láta lífeyrisþega spýta i púkkið. Sama hlutfall vill Ísland i Evrópusambandið. Litlu fleiri greiddu atkvæði í stjórnlagaþingskosningunum en það var álíka stór hópurinn og greiddi ekki atkvæði í Icesave-þjóðaratkvæðinu og sat heima ásamt Jóhönnu og Steingrími.
Og, vel á minnst, Samfylkingin fékk tæp 30 prósent atkvæða í síðustu þingkosningum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 30. nóvember 2010
Almenn skuldaniðurfelling dautt mál
Krafan um almenna niðurfellingu skulda er merkileg fyrir það eitt hve lengi hefur tekist að halda lífi í henni. Krafan er útrásarbólgin frekja fólks sem fór offari í fjármálasukki og vill að aðrir borgi. Krafan er jafnframt beint tilræði við samningsfrelsið í landinu því hún gerir ráð fyrir að suma samninga þurfi ekki að virða.
Þriðjungur þjóðarinnar vill almenna niðurfærslu skulda og láta lífeyrisþega borga.
Ánægjulegt er að 70 prósent þjóðarinnar virðist búa við þokkalega sterka siðferðiskennd.
![]() |
43% á móti almennri skuldaniðurfellingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 30. nóvember 2010
Huglausa stjórnin leitar skjóls
Fylgislaus og rúin trausti leitar ríkisstjórnin skjóls hjá stjórnarandstöðunni með því að kynna henni þykjustuúrræði á skuldavanda heimila. Ríkisstjórnin var búin að lofa upp í ermina á sér. Skötuhjúin Jóhanna Sig. og Steingrímur J. geta ekki komið hreint fram og sagt því miður er hvorki peningar né vilji til að lækka skuldir með allsherjarafskriftum.
Ríkisstjórnin býr til fund með stjórnarandstöðunni í því skyni að dreifa ábyrgðinni á eigin úrræðaleysi. Ríkisstjórn sem starfar í skjóli stjórnarandstöðu er ekki upp á marga fiska.
Pólitísk staða ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. veikist dag frá degi. Forsætisráðherra einangrast, hefur t.d. ekki sagt múkk um stjórnlagþingsfloppið. Ekkert er í sjónmáli sem bjargað getur ríkisstjórninni frá gröfinni sem hún sjálf gróf sér. Spurningin er hver kastar rekunum á líkið.
![]() |
Trúnaður um það sem ekkert er? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)