Aðlögun er innlimun

Evrópusambandið gerir ráð fyrir að umsóknarríki hafi staðfastan vilja til inngöngu. Talsmaður sambandsins staðfestir að aðein ein leið er í boði og það er aðlögunarleiðin. Aðlögun felur í sér að lög og reglur sambandsins eru tekin upp samhliða viðræðuferlinu. Evrópusambandið fylgist með framvindu aðlögunarinnar og skrifar reglulega skýrslur sem gefa yfirlit yfir aðlögunina.

Í lok aðlögunar er búið að innlima Ísland og þjóðaratkvæðið staðfesting á orðnum hlut. Í munni aðildarsinna heitir þetta lýðræði.


mbl.is ESB hafnar hugmyndum Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Írland á sjúkrabörum ESB

Írsk-evrópskur farsi hefur verið á dagskrá alþjóðlegu fjölmiðlanna um helgina. Fréttir um að írsk stjórnvöld séu í viðræðum við Evrópusambandið um neyðaraðstoð eru bornar til baka í Dublin. Eftir helgi er ekki lengur hægt að neita því augljósa. Írland er á sjúkrabörum Evrópusambandsins og fær litlu ráðið um meðferðina.

Írland á aðeins einn kost, segir Peter Oborne aðalstjórnmálaskýrandi Telegraph, og það er að hætta dauðadæmda samstarfinu við meginlandsríkin um evru og taka upp írska pundið á ný.

Írland er í spennitreyju evrunnar og getur sig hvergi hrært. Hér á landi er minnihlutahópur sem vill írskt ástand fyrir Ísland. Afgerandi meirihluti þjóðarinnar segir nei takk, ekkert ESB. Drögum umsóknina misráðnu tilbaka.


mbl.is Viðræður milli Írlands og ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-rýni staðfestir aðlögunarferlið

Rýnifundir íslenskra embættismanna út í Brussel staðfesta að Ísland er í aðlögunarferli en ekki óskuldbindandi samningaviðræðum. Rýnivinnan er undanfari þess að Ísland breyti löggjöf sinni til samræmis við lög og reglur Evrópusambandsins. Ef aðeins væri um samningaviðræður að ræða þyrfti ekki rýnifundi.

Aðlögunarferli Íslands felur í sér að við tökum jafnt og þétt upp lög og reglur Evrópusambandsins. Í reynd er Ísland innlimað í sambandið.

Þjóðaratkvæði í lok aðlögunarferlis er aðeins til málamynda. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. hefur líka gefið út að þjóðaratkvæðagreiðslan verði ,,ráðgefandi."


mbl.is Rýnt í samningaviðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bræður í Baugsþjónustu

Tveir bræður í blaðamennsku, Gunnar Smári og Sigurjón Egilsson, þjónuðu hagsmunum Jóns Ásgeirs þegar veldissól Baugs stóð í hádegisstað. Sigurjón skáldaði fréttir til að koma höggi á lögreglumenn sem unnu að rannsókn Baugsmála. Gunnar Smári endurreisti Fréttablaðið fyrir Baugsfé en hélt eignarhaldi Jóns Ásgeirs leyndu þangað til það var óhætt að sannleikurinn kæmi í ljós. Gunnar Smári bjó til fréttina um að Davíð Oddsson hefði sigað lögreglunni á Baug.

Um helgina hafa þeir bræður reynt að endurreisa blaðamannaæru sína með því að endurtaka lygina sem þeir báru á borð í þjónustu Baugs.

Bræðurnir vita sem er að orðspor þeirra er órjúfanlega tengt ferilsskrá Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

 

http://eyjan.is/2010/11/14/gunnar-smari/


Lýðræði Árna Þórs

Moskvumenntaður valdatæknir Vinstri grænna gengur með lýðræðishugmyndir sem hæfa menntun og starfsferli. Árni Þór Sigurðsson bauð sig fram fyrir stjórnmálaflokk sem hafði það á stefnuskrá sinni að halda Íslandi utan Evrópusambandsins. Eftir kosningar tók Árni Þór höndum saman við fyrrum félaga sína Samfylkingunni og kom Íslandi í aðlögunarferli að Evrópusambandinu.

Eftir að Ísland hefur tekið upp lög og reglur ESB, í reynd verið innlimað í sambandið, ætlar Árni Þór að bjóða þjóðinni að staðfesta orðinn hlut í þjóðaratkvæði.

Árni Þór fyrirlítur lýðræðið og lítur á trúnað sem hverja aðra verslunarvöru. Siðleysingjar eins og Árni Þór eru ástæðan fyrir því að 90 prósent þjóðarinnar hefur enga tiltrú á alþingi.


mbl.is Segir hugmyndir Ögmundar óraunhæfar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. nóvember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband