Mánudagur, 28. september 2009
Sauðafrétt um Steingrím J.
Reuters nefnir sauði álíka oft og fjármálaráðherra í þessari frétt. Líkleg skýring er eftirfarandi tilvitnun
"They want a legally binding guarantee that we will pay it back," said Sigfusson, who grew up on a large sheep farm in the northeastern part of the island. "We are bound by the law. Either the final outcome has to be in full compliance of the law or the law has to be amended."
Allir aðrir en fjármálaráðherra vita að þriðja leiðin er sú eina skynsamlega: Nýr samningur.
En áður en hægt er að gera nýjan samning þarf ríkisstjórnin að kannast við ábyrgð sína á ónýtum Icesave-samningi og segja af sér. Ætli sú vitneskja geri Steingrím J. að sauði?
![]() |
Vonast eftir Icesave niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 28. september 2009
Hryglustjórnmál
Hryglustjórnmál heitir það þegar dauðvona ríkisstjórn hrúgar upp stórum tillögum um fyrirætlanir sínar. Tillögurnar eiga engan möguleika að ná fram að ganga. Stjórnarráðið er byggt þannig upp að ráðherra er með ráðuneyti að léni og getur bremsað allar tillögur um breytingar án þess að þess sjáist nokkur merki. Nóg er að ráðherra setji upp skeifu og þá gera undirmenn hans ekkert og fyrirætlanir forsætisráðuneytis fara út um þúfur.
Til að gera róttækar breytingar á stjórnkerfinu þarf í senn sterka sannfæringu, öfluga leiðtoga og meðbyr þjóðarinnar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekkert af þessu.
Ráðherrar sitjandi ríkisstjórnar eru þegar farnir að huga að pólitískum leikfléttum eftir formlegt andlát stjórnarinnar.
![]() |
Viðamiklar breytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 28. september 2009
Afdráttarlaus miðjupólitík
Ár er liðið frá hruni og útlínur nýja Íslands eru enn í móðu. Líklega er botninum náð í efnahagskreppunni en þjóðarvitundin finnur ekki útleið úr völundarhúsi hrunsins. Á vinstri kanti stjórnmálanna ræður lífsspeki uppgjafar, Evrópusambandið á að bjarga landinu frá þjóðinni sem byggir það. Hægrimenn virðast ætla að ná vopnum sínum sem frjálshyggjumenn gærdagsins. Samhengi óheftrar markaðshyggju og hrunsins ætti að vera hverjum manni augljós.
Ef hægrið og vinstrið, að svo miklu leyti sem vit er í þeim merkimiðum, ætla ekki að láta segjast og leggja af ófremdarfræði sín skapast kjöraðstæður fyrir afdráttarlausa miðjupólitík sem byggir á traustum gildum ráðdeildar í efnahagsmálum, íhaldssemi í þjóðfélagsmálum og síðast en ekki síst sannfæringar að Íslendingum sé best borgið með forræði eigin mála.
Í einni setningu: Framsóknarflokkurinn gæti orðið flokkurinn okkar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 28. september 2009
Minnihlutastjórn, ekki þjóðstjórn
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur rann sitt skeið þegar Bretar og Hollendingar höfnuðu fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgð á Icesave-samningunum. Ófrávíkjanlegt pólitískt gjald til að fá viðsemjendur okkar að samningaborði er að ríkisstjórnin axli ábyrgð og fari frá. Þangað til verður allt frosið.
Mótbáran við að ríkisstjórnin segi af sér er iðulega að ekkert betra sé í stöðunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, mótmælti því ekki í Silfri Egils að flokkurinn treysti sér ekki í ríkisstjórn vegna óuppgerðra hrunmála. Af þeirri staðreynd má ekki draga þá ályktun að ekki sé hægt að mynda nýja stjórn.
Þjóðstjórn hefur verið nefnd sem möguleik en það er afleitt fyrirkomulag. Það þýðir að engin stjórnarandstaða er á þingi og býður heim hverskyns hættu á undirmálum, undirferli og ósvinnu.
Minnihlutastjórn Vinstri grænna er á hinn bóginn raunhæfur kostur. Vg eru ekki aðilar að hruninu, eins og allir hinir flokkarnir. Með Vg í stjórn í skjóli samkomulags á þingi er ekki hætta á að framkvæmdavaldið gleypi þingið, eins og í tilviki þjóðstjórnar, en jafnframt myndi nást breið samstaða um helstu mál.
Minnihlutastjórnin yrði mynduð til skamms tíma 12-18 mánaða og yrði þá gengið til kosninga að nýju.
Aðstæður eru sérstakar nú um stundir og þær kalla á óhefðbundnar lausnir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)