Fimmtudagur, 17. september 2009
Tilræði við þingræðið
Ríkisstjórnin ætlar að fallast á kröfur Breta og Hollendinga um að fyrirvarar Alþingis við Icesave-samninginn verði ómerktir. Tvíeykinu í forystu ríkisstjórnarinnar er ekkert heilagt er völd eru annars vegar. Steingrímur J. og Jóhanna vita að falli Icesave-samningurinn fer ríkisstjórnin sömu leið.
Icesave-samningurinn var ónýtur samningur sem Alþingi reyndi að gera bærilegan með stífum og ákveðnum fyrirvörum. Bretar og Hollendingar ætla ekki að samþykkja fyrir sitt leyti þessa fyrirvara.
Af því leiðir að Icesave-samningurinn er fallinn.
Í stað þess að ríkisstjórnin standi með þjóðinni er ætlunin að grafa undan þingræðinu með því að ómerkja lög frá Alþingi. Ríkisstjórnin er bandamaður Breta og Hollendinga gegn íslensku þjóðinni ef hún heldur fast í þessa afstöðu.
Ríkisstjórnin verður að fara frá völdum og boða til nýrra kosninga.
![]() |
Ekki afsláttur" af fyrirvörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 17. september 2009
Ríkisstjórnin í höndum Breta og Hollendinga
Bretar og Hollendingar hafa líf ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur í höndum sér. Ef bresk og hollensk stjórnvöld neita að fallast á fyrirvara Alþingis á ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldanna er ríkisstjórn Íslands fallin.
Það eitt að afdrif íslenskrar ríkisstjórnar sé í höndum stjórnvalda í London og Haag er lýsandi fyrir vandræðin sem útrásarauðmennirnir skópu þjóðinni.
Líkurnar eru fyrir því að Hollendingar og Bretar sjái aumur á ríkisstjórn Jóhönnu og hafni ekki alfarið niðurstöðu Alþingis. Þeir vita sem er að samningsstaða Íslands er snöggtum betri núna en hún var í kjölfar hrunsins. Á hinn bóginn vakna grunsemdir við það hvernig staðið er að kynningu á viðbrögðum útlendinganna. Ef málið væri sæmilega klippt og skorið hefði einföld fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu útskýrt niðurstöðuna. Sérstakir þingnefndarfundir þegar þingið er í fríi veit ekki á gott.
![]() |
Hugmyndir Breta og Hollendinga kynntar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |