Föstudagur, 14. ágúst 2009
Samstaða um þjóðargjaldþrot, nei takk
Ríkisstjórnin beitir öllum brögðum til að lemja saman samstöðu um Icesave-samninginn. Þegar rennur upp fyrir ráðherrum að á Alþingi eru menn og konur sem líta ekki á hlutverk sitt að svíkja umbjóðendur sína verður kannski hægt að koma þeim í skilning um að samninginn þarf að fella. Spurningin er aðeins hvort gengið verði hreint til verks og frumvarpið fellt eða hvort samningnum verði hafnað með stífum fyrirvörum.
Örvænting stjórnarliða stafar af heimatilbúnum vanda vinstriflokkanna sem hafa alið á hræðslu og talað kjarkinn úr þjóðinni. Ríkisstjórn í stríði við þegna sína á sér ekki viðreisnar von.
![]() |
Unnið að breytingum fyrirvara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 14. ágúst 2009
Lögregluríki Steingríms J.
Eftir að landráðabrigslin ná flugi mun ríkisstjórnin beita framkvæmdavaldinu til að hafa uppi á lögbrjótum, t.d. með hlerunum og öðrum persónunjósnum.
Vinstriflokkarnir búa að mannskap sem bæði kann og getur svívirt lýðræðislegar leikreglur. Árni Þór Sigurðsson þingmaður og liðþjálfi Steingríms lærði sín fræði í Moskvu á sínum tíma og hefur sýnt sig viljugt verkfæri til skítverka.
Lýðræðissinnar í öllum flokkum verða að sameinast um að koma ríkisstjórninni frá völdum áður en það verður um seinan.
![]() |
Skaðar hagsmuni Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 14. ágúst 2009
Skilaboð frá útlöndum: Stjórnin þarf að falla
Í útlöndum skilja menn stjórnarkreppur. Í lýðræðisríki er stjórnarkreppa merki um að tekist sé á um erfið verkefni. Ábyrgðaraðili Icesve-samningsins hér á landi er ríkisstjórn Íslands. Til að forða þjóðinni frá þessum ósanngjarna samningi verður að fella samninginn á Alþingi og stjórnin þarf að falla með. Það eru skýr skilaboð til útlanda um að samningurinn sé óviðunandi og jafnframt að á Íslandi sé virkt lýðræði.
Ef ríkisstjórnin kemst upp með sinn hráskinnaleik, að búa til málamyndarfyrirvara, veikist traust á íslenska stjórnkerfinu enn frekar og er af litlu að taka. Í útlöndum væri það skilið sem pólitísk útfærsla á Icesave-reikningum og útrásarhyggjunni. Stjórnin heldur völdum en gefur útlendingum langt nef.
Samfylkingin, og í seinni tíð Vg, eru flokkar ríkulega útbúnir útlendingaþjónkun. Þeim ætti ekki að vera að vanbúnaði að fylgja ráðleggingum að utan um að stjórnin þurfi að víkja til að hægt sé að semja upp á nýtt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 14. ágúst 2009
Fæðir Ögmundur mús?
![]() |
Ekki breið samstaða um fyrirvara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)