Föstudagur, 24. júlí 2009
Egill, Illugi og Gamli sáttmáli
Félagarnir Egill Helgason og Illugi Jökulsson eiga sameiginlegt að hafa verið fíflaðir af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni Baugssyni. Egill var í þjónustu Jóns Ásgeirs þegar fjölmiðlafrumvarpið var til afgreiðslu og hélt uppi vörnum fyrir Baugsveldið. Illugi var á mála hjá útgáfudeild Baugs og starfaði m.a. á DV.
Þeir sem tóku útrásarsmit eru næmir fyrir ESB-bólunni og Egill og Illugi leggja sitt af mörkum til að véla okkur inn í Brusselsamsteypuna enda líkar þeim stórveldi. Til að greiða okkur leið þangað austur falsa þeir söguna. Illugi skrifaði um Gamla sáttmála í vor og Egill endurbirtir.
Gamli sáttmáli var löngum nefndur Gissurarsáttmáli í höfuð Gissurar Þorvaldssonar sem sá um að taka eiða af Íslendingum fyrir Noregskonungafeðga, Hákon og Magnús.
Sögufölsun Egils og Illuga er að gera því skóna að sáttmálinn hafi engu breytt fyrir Íslendinga. Þá fyrst hafi orðið breytingar til hins verra þegar Kalmarssambandið leið undir lok á sextándu öld og Ísland varð að danskri hjálendu.
Með svardögum um trúnað við útlendan konung á 13. öld gáfu Íslendingar frá sér forræði eigin mála. Það forræði fékkst ekki aftur fyrr en sjö öldum síðar. Það hittist svo á að fljótlega eftir að Ísland gekk Noregskonungi á hönd hófst hnignunarskeið Noregs og við þær kringumstæður verður konungsvaldið veikara eftir því sem fjær dregur valdamiðjunni.
Fyrirmenni á Íslandi voru leppar útlendra konunga og þegar konungsvaldinu óx ásmegin var leiðin greið að skipta út íslenskum fyrirsvarsmönnum og setja útlendinga í staðinn. Það hefði ekki verið hægt á sextándu öld ef við afsöluðum okkur ekki landsréttindum á þrettándu öld.
Íslendingar á 13. öld settu þann fyrirvara í Gissurarsáttmála að þeir vildu íslensk lög hafa. Er það í samræmi við venju í okkar heimshluta, þjóðir vilja sín eigin lög. Evrópusambandið verður til vegna þess að þjóðríkin á meginlandinu gátu ekki haldið friðinn með eigin lögum og komu sér saman um yfirþjóðleg lög og samband. Við Íslendingar eigum engan hlut að máli Evrópuþjóðanna og eigum ekki að slást í för með þeim.
Egill og Illugi áttu sinn hlut í helvítis fokking fokkinu; þeir voru teknir í afturendann af auðmanni. Félagarnir bíta höfuðið af skömminni með því að láta niðja sína gjalda glapræðisins.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Föstudagur, 24. júlí 2009
ESB-rök ASÍ gagnrýnd frá Noregi
Aðalhagfræðingur norska alþýðusambandsins, LO, gagnrýnir rök ASÍ fyrir aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Í viðtali við norska ríkisútvarpið segir Stein Reegård að efnahagsleg rök fyrir aðild að Evrópusambandinu séu á veikum grunni. Hann segir kreppuna á Íslandi heimatilbúna og innganga í Evrópusambandið engu breyta um þær ráðstafanir sem stjórnvöld þurfi að grípa til.
Reedgård segir að ef Ísland hefði verið með evru væri ástandið enn verra. Háir vextir hafi þrátt fyrir allt verið hemill á þensluna og verðfall krónunnar geri atvinnulífið samkeppnisfært á ný.
Í umfjöllun norska ríkisútvarpsins er haft eftir Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ að upptaka evru sé nauðsynleg til að endurreisa atvinnulífið. Reedgård dregur dár að Gylfa og bendir á að Ísland muni ekki geta tekið upp evru á næstu árum, landið uppfylli ekki skilyrði Evrópusambandsins.
Norska alþýðusambandi hefur verið hlynnt aðild Noregs að Evrópusambandinu. Þar á bæ vita menn hins vegar að efnahagsleg rök fyrir inngöngu halda ekki vatni.
Hér er umfjöllun NRK.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 24. júlí 2009
Ísland selur sig
Í umsókninni til Brussel sem skrifuð er í utanríkisráðuneytinu segir að vegna legu landsins sé eftirsóknarvert fyrir Evrópusambandið að taka við Íslandi. Orðrétt segir í umsókninni
As a country on Europe's north-western flank and the only country entirely within the Arctic, a region of growing interest to the EU, Iceland believes its membership would serve the EU's geographical completeness. Iceland and the EU share common interests in the High North.
Málsgreinin kemur strax á eftir setningu þar sem því er haldið á lofti að Ísland hafi greitt í EFTA/EES-sjóði til að efla evrópska samvirkni.
Búðarlokuhugsunarhátturinn er yfirþyrmandi.
Hér er textinn í heilu lagi en vefsetrið EurActiv.com komst yfir textann.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)