Föstudagur, 25. desember 2009
,,Glæsileg niðurstaða'' og ,,ríkuleg uppskera"
Þegar eljumenni eins og Steingrímur J. komast til valda er hætt við að metnaðurinn beri skynsemina ofurliði. Stuttu fyrir Icesave-samningana snemmsumars lofaði Steingrímur J. ,,glæsilegri niðurstöðu." Í jólaávarpi til flokksmanna elur formaður Vinstri grænna á væntingum um ,,ríkulega uppskeru."
Steingrímur J. les ekki rétt í þjóð sína ef hann telur nauðsynlegt að lofa gulli og grænum skógum að lokinni tiltekt ríkisstjórnarinnar. Almenningur veit að nú árar illa og samdráttur verður næstu misseri enda nýlokið ógnarþenslu sem lauk með hruni.
Þjóðin vill taka mótlætinu með reisn og láta ekki kúga sig að óréttlátum skilmálum. Steingrímur J. getur skilað til þjóðarinnar ,,ríkulegri uppskeru" strax milli jóla og nýárs með því að fella Icesave-frumvarpið.
Ætli Steingrímur J. á hinn bóginn að þvinga fram samþykkt Icesave-frumvarpsins er hann kominn í hlutverk loddara kaþólsku kirkjunnar á miðöldum sem seldu aflátsbréf út á ,,glæsilega niðurstöðu og ríkulega uppskeru,"- síðar meir þegar skuldir og eignastaða jarðlífsins skiptu ekki lengur máli.
![]() |
Tók við af búskussa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 25. desember 2009
Icesave í hnotskurn
Tvær hættur blasa við í Icesave-frumvarpinu sem þingmenn greiða atkvæði um milli jóla og nýárs. Ef við samþykkjum frumvarpið er hætta á þjóðargjaldþroti í versta falli en meiri líkur eru á verulega íþyngjandi skuldabyrði næstu áratugi. Ef við fellum frumvarpið er hætta á fjárhagslegri einangrun í versta falli en líklegra er að hökt verði á alþjóðlegu samstarfi okkar um hríð.
Þingmenn sem bera hag þjóðarinnar fyrir brjósti geta ekki annað en hafnað frumvarpinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)