Færsluflokkur: Dægurmál

Faðir, sonur og heilagur andi

„Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að ganga í Evrópusamandið. Ég skil ekkert í landsfundarfulltrúum að segja það ekki bara beint út," sagði Pétur Blöndal, alþingismaður, einn þeirra sem lagði fram tillögu um að tillaga Evrópunefndar yrði felld.

„Guð fyrigefi Pétri, hann ætlar að eyðileggja flokkinn," sagði Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey. Þórir lagði áherslu á að landsfundarfulltrúar styddu það sem Björn Bjarnason sagði, en Björn kom í pontu og lagði áherslu á að landsfundarfulltrúar samþykktu lokadrög ályktunarinnar.


mbl.is Þjóðin fái að skera úr um ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spron sprakk vegna græðgi

Ég var í viðskiptum við Spron líkt og þúsundir annarra launamanna. Spron var ekki hlutafjárvætt til að sinna okkar þörfum en var þeim prýðilega sinnt á meðan Spron var sparisjóður með gamla trausta laginu. Spron var hlutafjárvæddur til að búa til hagnað hjá stofnfjáreigendum annars vegar og hins vegar til að þjóna lund Guðmundar og félaga sem vildu í milljarðaviðskiptin með Kaupþingi og hinu fjárglæfraliðinu.

 


mbl.is Guðmundur Hauksson: Hlutafjárvæðing ekki mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ hlýtur að leiðrétta þessi mistök

ASÍ setur slæmt fordæmi með því að setja starfsmanni stólinn fyrir dyrnar vegna pólitískrar þátttöku. Málið er grafalvarlegt vegna þess að ASÍ á að verja réttindi launafólks en grefur núna undan þeim. Það heitir almenn pólitísk þátttaka að taka sæti á framboðslista. Ef viðkomandi nær kjöri á Alþingi lítur málið öðruvísi út. Þingmennska er fullt starf og af sjálfu leiðir að ekki er hægt að vera í fullu starfi á tveim vinnustöðum.

ASÍ hlýtur að endurskoða afstöðu sína í málinu.


mbl.is Framsóknarflokkurinn gagnrýnir ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar og Bandaríkjamenn læra af Íslandi

Nýjasta bjargráð ríkisstjórnar Obama gagnvart kreppunni fær falleinkunn hjá mönnum eins og Paul Krugman og Josep Stigliz. Breski seðlabankastjórinn segir ríkisstjórn Gordon Brown að hún geti ekki prentað meiri peninga til að kaupa sig úr vandanum.

Bandaríkjamenn og Bretar munu læra af Íslendingum: Ríkið verður að yfirtaka ónýta banka, stroka út hlutafé þeirra og endurfjármagna. Geir H. Haarde er um það bil að fá uppreisn æru.


Sovéskir atvinnurekendur

Talsmaður atvinnurekenda fer á límingunni vegna þess að sum fyrirtæki greiða starfsmönnum sínum umsamdar launahækkanir. Vilhjálmur er eins og sovéskur kommisar sem vill berja atvinnurekendur til hlýðni við hinn eina sanna málstað frestaðra launahækkana. Frestun launahækkana er gerð í skjóli hrunsins sem var í boði fjármáladeildar atvinnurekenda. Hvað ætli stjórnmáladeild atvinnurekenda, Sjálfstæðisflokkurinn, segi um málið?
mbl.is Samningar hanga á bláþræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vaxandi lýðræðishalli í ESB

Vaclav Klaus forseti Tékklands segir í viðtali við Sunday Times að um 75 prósent af löggjöf aðildarríkja Evrópusambandsins komi núna frá embættismönnum í Brussel sem hafi ekkert lýðræðislegt umboð. Lissabonsáttmálinn, sem væntanlega verður samþykktur þegar Írar verða þvingaðir til að fallast á sáttmálan í þjóðaratkvæðagreiðslu í seinna í ár, eykur valdsvið embættismanna í Brussel á kostnað þjóðríkja. Klaus telur að vaxandi lýðræðishalli Evrópusambandsins veiki stöðu þjóðríkja og gefur lítið fyrir evrópska samfélagsvitund - í fyrirsjáanlegri framtíð verði það þjóðríkið sem einstaklingar finni til samkenndar með en ekki stórríki Evrópu.

Sjá viðtal Sunday Times við Klaus.


Siðblind stjórn Spron

Stjórn Spron og forstjóri, Guðmundur Hauksson, keyrðu sparisjóðinn í gjaldþrot með græðgisblinduðum loftkastalarekstri. Í stað þess að biðjast afsökunar á framferði sínu er stjórnin með derring og kennir öðrum um hvernig fór.

 


mbl.is Harma hvernig yfirtaka SPRON var kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fatti Kristján stöðuna á hann sjens

Grunngildi Sjálfstæðisflokksins um ábyrgð einstaklingsins, ráðdeild og fyrirhyggju hafa verið fótum troðin af siðblindri frjálshyggju. Til að bæta gráu ofaná svart ætlar mannskemmandi auðhyggjudeild flokksins að keyra Ísland lóðbeint til Brussel. Ef Kristján Þór Júlíusson fer fram gegn erfðaprinsi auðmanna með það á stefnuskrá sinni að gera upp við frjálshyggjuna og hafna draumórum um Evrópusambandsaðild á hann sjens og gæti jafnvel gefið Sjálfstæðisflokknum möguleika í apríl. Á blaðamannafundinum í dag verður Kristján að sýna að hann er læs á stöðuna.
mbl.is Kristján Þór tilkynnir um framboðsáform
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þér tókst það, Guðmundur Hauksson

Guðmundi Haukssyni og forkólfum Spron tókst að keyra Sparisjóð Reykjavíkur í þrot. Einbeittur vilji Þrotamumma og félaga náði fram að ganga þrátt fyrir að lög voru sett til að hamla gegn græðisvæðingunni og viðvörunarljós blikkuðu í mælaborðinu. Þrotamummi læsti klónum saman við Existubræður og Kaupþingssnillinga og þá var ekki að sökum að spyrja.

Ekki er að efa að hugur Existubræðra og Kaupþingsnonnana sé með starfsfólki Spron.


mbl.is SPRON til Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálftökuflokkurinn

Í Sjálfstæðisflokknum er nokkrir hópar og sjálftökuflokkurinn þeirra stærstur. Sá flokkur lagði grunninn að útrásarfirringunni með því að selja ríkiseigur á tombóluprís til vildarvina. Vilhjálmur Egilsson er launaður starfsmaður sjálftökuliðsins og það að hann skuli leiða svokallaða endurreisnarnefnd sýnir að  Sjálfstæðisflokkurinn hyggst ekkert læra af mistökum síðustu ára.

Á meðan sjálftökuhópurinn ræður ríkjum í móðurflokki íslenskra stjórnmála er engin von til að flokkurinn komist til fyrri áhrifa. 


mbl.is Fólkið brást, ekki stefnan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband