Færsluflokkur: Dægurmál

Ríkisstjórn úr takti við þjóðina

Ríkisstjórnin er ekki í neinu sambandi við þjóðina vegna þess að spunapólitík Samfylkingar ræður för. Spuninn er kaffihúsaspeki miðbæjarfólks sem skilur ekki atvinnumál, er hrætt við sjálfstæða hugsun og fælist ákvarðanir. Samræðupólitík Samfylkingarinnar er annað orð yfir loftkastalastjórnmál. Hvað þarf til að Vinstri grænir fatti ástandið?
mbl.is „Pólitískt sjálfsmorð“ að kollvarpa sjávarútveginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýskur agi vaxta gegn stjórnleysi ASÍ/SA

Vextir mega ekki lækka niður fyrir verðbólgu, eins og óábyrgu samtök vinnumarkaðarins krefjast, vegna þess að sparnaður mun fuðra upp og gamalkunnur verðbólguhugsunarháttur grafa um sig á ný.

Ævaforn gildi um sparnað og ráðdeild er það sem þjóðin þarf á að halda. 

Undarlegur er málflutningur aðila vinnumarkaðarins þar sem þeir í einn stað krefjast inngöngu í ESB með meintum stöðugleikaáhrifum en í annan stað vilja þeir vaxtalækkanir sem myndu valda nýrri kollsteypu.

Við eigum að byrja hvern dag á því að þakka fyrir krónuna annars vegar og hins vegar að fordæma lágvaxtafirruna sem tröllríður húsum.


mbl.is Vextir lækkaðir í 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smáþjóð í krumlu ESB

Lettar eru í Evrópusambandinu og í myntsamstarfi við ESB sem miðar að því að gera evru að lögeyri í Lettlandi. Eins og fjölmargar aðrar þjóðir standa Lettar frammi fyrir erfiðum kostum til að ráða bug á kreppunni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mælti með að fella gengi latsins til að lækka kostnað og gera hagkerfið samkeppnishæfara. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins greip þá í taumana og kom í veg fyrir að Lettar aftengdu eigin gjaldmiðil við evruna. Framkvæmdastjórnin hafði áhyggjur af fordæminu.

Lettar geta sig hvergi hrært, eru í Evrópusambandinu og komnir að hálfu með evru og hagkerfið í rúst. 

Sjá fréttaskýringu Daily Telegraph.


Fjölmiðlaelítan beitir þöggun

Í gær kynnti Heimssýn niðurstöður skoðanakönnunar Capacent Gallup um afstöðu þjóðarinnar til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Meðal niðurstaðna er að lítill áhugi er fyrir viðræðum og meirihluti þjóðarinnar telur að betur sé heima setið en lagt af stað í Brusselleiðangur.

Mbl.is gerði könnuninni skil en prentútgáfa Morgunblaðsins sá ekki ástæðu til að fjalla um málið. Háværust var þögn RÚV-miðlana. Hvorki Sjónvarpið né Ríkisútvarpið sögðu frá könnun Capacent Gallup. Báðir miðlar segja reglulega frá niðurstöðum kannana sem eru jákvæðar fyrir aðildarsinna. Raunar auglýsti RÚV fyrir skemmstu liðlangan daginn að um kvöldið yrði sagt frá nýrri Evrópukönnunin og átti hún að skjóta stoðum undir málflutning aðildarsinna.

Fagleg staða RÚV-miðla er orðin heldur bágborin þegar þetta er frammistaðan í þjóðþrifamálum.

Könnunina má lesa í heild hér.

Athugasemd að kveldi 3. júlí: Fréttastofa Útvarps gerði könnuninni skil í hádegisfréttum í dag.


Kínverska öldin gengin í garð

Ódýrt kínverskt vinnuafl skóp bandarískum fjölþjóðafyrirtækjum gróða og neyslugræðgi bandarísks almennings örvaði hagvöxt í Kína. Ríkiskassinn í Kína skilaði afgangi sem var notaður til að kaupa bandarísk ríkisskuldabréf og það hélt vöxtum lágum sem aftur bjó til húsnæðisbólu er sprakk með látum þegar undirmálslánin fengust ekki greidd.

Á þessa leið greinir sagnfræðingurinn Niall Ferguson samskipti Kína og Bandaríkjanna. Hann er meðhöfundur að hugtakinu Kínmeríka en það er samheiti yfir tvo meginvaldapóla veraldar um þessar mundir, Kína og Bandaríkin (Rússland er ekki nefnt né heldur sá útskagi Asíusléttunnar sem kallaður er Evrópa).

Ferguson leiðir að því líkum að fjármálakreppan sem hófst í Bandaríkjunum fyrir tveim árum mun breyta valdajafnvæginu í heiminum Kína í vil. Kringumstæðurökin fyrir breyttu valdajafnvægi eru studd sögulegum rökum um kreppur sem fella stórveldi.

Maður fær fulla samúð með íslenskum ráðamönnum þegar þeir ýmist leggja á flótta til eyja í Miðjarðarhafi eða fela sig í íslenskum sumarbústað til að hitta ekki í Reykjavík tíbetskan múnk sem ráðamenn í Peking hafa illan bifur á.


Þjóðin vill ekki kíkja í ESB-pakkann

Þessi skoðanakönnun sýnir svo ekki verður um villst að þjóðin hefur ekki áhuga á því að vita hvað býðst í Brussel. Aðildarsinnum hefur liðist að kalla umsókn aðildarviðræður og þegar þjóðin er spurð hvort hún vilji aðildarviðræður þá hefur meirihlutinn lítinn sem engan áhuga á viðræðum. Nærri má geta hvernig þjóðin myndi svara spurningunni: Ertu fylgjandi að Ísland gangi í Evrópusambandið?

Stjórnmálaelítan og fjölmiðlaelítan eru fullkomlega úr takti við þjóðina þegar kemur að spurningunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu.


mbl.is Áherslan á heimilin og fyrirtækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðildarviðræður felldar í skoðanakönnun

Þjóðin hefur ekki áhuga á aðildarviðræðum við Evrópusambandið, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup. Við bíðum nánari frétta af könnuninni frá fjölmiðlum.

Krugman, kreppan og Framsókn

Rætur kreppunnar á Vesturlöndum liggja í stjórnartíð Ronalds Reagans í Bandaríkjunum í byrjun níunda áratugsins, samkvæmt nóbelsverðlaunahafanum Paul Krugman. Í pistli í New York Times rifjar Krugman upp breytingar sem Reagan stóð fyrir á fjármálalöggjöf er auðveldaði brask og ruddi úr vegi hindrunum og opinberu eftirliti sem fjármálastarfsemi var sett undir í kjölfar heimskreppunnar á fjórða áratugnum.

Frjálshyggja Sjálfstæðisflokksins var skilgetið afkvæmi Reagans og Thatchers hinu megin við sundið. Ein málsgrein í pistlinum rifjar upp hlutdeild annarra stjórnmálaflokka í gullkálfadansinum. Krugman skrifar

But there was also a longer-term effect. Reagan-era legislative changes essentially ended New Deal restrictions on mortgage lending - restrictions that, in particular, limited the ability of families to buy homes without putting a significant amount of money down.
These restrictions were put in place in the 1930s by political leaders who had just experienced a terrible financial crisis, and were trying to prevent another. But by 1980 the memory of the Depression had faded. Government, declared Reagan, is the problem, not the solution; the magic of the marketplace must be set free. And so the precautionary rules were scrapped.

Hér á Íslandi bauð Framsóknarflokkurinn 90 prósent húsnæðislán og gerði að meginloforði í kosningabaráttunni 2003. Framsóknaflokkurinn er löngum þefvís á loforð sem gefa atkvæði og las rétt í spilin. Fólk var tilbúið að slá til og taka meiri lán en áður, í trausti þess að hækkandi eignaverð myndi réttlæta djarfar lántökur. Spilavítishugsunarhátturinn fékk snöggan endi í október 2008. Höfum við heyrt afsökunarbeiðni frá þeim sem héldu vitleysunni að fólki? 

 


Svikalogn Jóhönnu Sig.

Meðbyr ríkisstjórnarinnar var mældur áður en tilkynnt var um skattahækkanir og umræða var ekki hafin þingsályktun Össurar Skarphéðinssonar um að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Þjóðin er þess meðvituð að hrunið leiðir til versnandi lífskjara og er án efa tilbúin að fallast á hækkandi skatta og auknar álögur.

Þjóðin verður aftur ekki ýkja ánægð ef ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur kemur sér ekki að því síðsumars eða í haust að útskýra hvert hún stefnir og leggi fram trúverðuga áætlun um það hvernig við vinnum okkur úr vandanum.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. mun ekki geta lagt fram slíka áætlun á meðan annar ríkisstjórnarflokkurinn heldur fast í þá stefnu sína að afsala fullveldi og forræði þjóðarinnar til embættismanna í Brussel. Svo einfalt er það.


mbl.is Stuðningur við stjórnina eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bernsk aðildarrök

Íslenskir aðildarsinnar að Evrópusambandinu tefla fram ýmsum rökum. Sum spretta af vantrú; við getum ekki séð um okkur sjálf, sjáið bara hrunið o.s.frv. Önnur eru mörkuð oftrú; við göngum í ESB og breytum sjávarútvegsstefnunni innan frá. Glýjurökin eru þriðja útgáfan; ESB er svo stórmerkilegt fyrirbæri í veraldarsögunni að við verðum að ganga inn. Árni Snævarr, smurður Brusselagent Samtaka iðnaðarins, færi glýjurökin í þennan búning:

Það tala mjög fáir um andstöðu við aðild að ESB í aðildarríkjunum. Það er dálítið eins að segjst vera á móti fjármálum, manni getur verið uppsigað við magt í fjármálakerfinu en það er þýðingarlaust að vera á móti fjármálakerfinu og sama gildir um ESB. ESB er staðreynd.
Við getum ekki einu sinni selt fisk til Rússlands án þess að ESB komið við sögu.

Samkvæmt Árna og skoðanabræðrum eru þeir ofstækismenn sem vilja standa fyrir utan dýrðarríki Evrópusambandsins. Fyrri dýrðarríki álfunnar, bæði í vestri og austri, beittu sömu rökum þegar sérviskuþjóðir vildu halda sjálfstæði og forræði eigin mála. Og alltaf eru til menn eins og Árni Snævarr að vísa okkur veginn að framtíðarríkinu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband