Færsluflokkur: Dægurmál

Hvernig skal böl bæta?

Verðmætin sem eyddust í hruninu voru óáþreifanleg, peningarnir voru tölur í gagnabönkum og tapað orðspor þjóðarinnar skilur eftir tilfinningu tómleika og depurðar sem er hægt að skynja en ekki sjá. Þegar einhver tekur sig til og brýtur og bramlar naglfasta eign fær eymdin ásýnd. Hús sem var heimili er rúst.

Örþrifaráð af þessu tagi er ekki hægt að mæla bót. Ef hrunið gerir okkur að niðurrifsfólki erum við enn að blóta græðgisguðinn sem lék lausum hala alltof lengi og rændi fólk sjálfsvirðingunni og reisn. Látum gott heita af stjórnleysi og temjum okkur hófstillingu. Finnum leiðir til að sýna álit okkar á ástandinu án þess að tortíma.


mbl.is Bankinn fékk ekki lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðveldið - drög að grafskrift

Í skjóli efnahagskreppu er komin til valda ríkisstjórn sem með takmarkað umboð ætlar að flytja til útlanda helstu valdheimildir lýðveldisins. Innanmein lýðveldisins eru svikráð sumra trúnaðarmanna almennings sem virðast ætla að greiða atkvæði sitt tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu þrátt fyrir yfirlýsingu um annað fyrir kosningar.

Til að koma í veg fyrir að drögin verði frágengin grafskrift lýðveldisins þarf að koma ríkisstjórninni frá völdum. Það er verðug heitstrenging 17. júní 2009.


mbl.is Lýðveldið veikara en nokkru sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neðanmálsgrein dagsins

Bloggið er neðanmálgrein opinberrar umræðu. Fræðirit opnast lesendum þegar neðanmálsgreinar eru athugaðar. Opinber umræða verður gegnsærri þegar bloggið er lesið.

Neðanmálsgrein dagsins á Jóhann Björnsson.


Gunnar I. fórnarlamb, já er það ekki?

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi opnaði bæjarsjóð fyrir dóttur sína sem skrifaði reikninga fyrir  verk sem sum voru varla unnin og ofurreikninga fyrir önnur störf. Núna virðist hann þurfa að víkja sem bæjarstjóri og stillir sjálfum sér upp sem fórnarlambi vinstrimanna og fjölmiðla.

Gunnar er álíka fórnarlamb og þjófur sem staðinn er að verki og er kallaður lögbrjótur.


mbl.is Framkvæmdaglaður bæjarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villi og orðræða atvinnulífsins

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ekki megi skattleggja fyrirtækin þannig að atvinnulífið ,,falli niður." Atvinnulíf óvart getur ekki fallið niður í neinni eiginlegri merkingu orðanna að falla niður. Tungubrjótur framkvæmdastjórans kemur sennilega til af því að honum er orðs vant. Fyrirtækin töpuðu frjálshyggjuorðræðunni sinni í hruninu. Þið munið stefið um lægri skatta, meiri gróða - og allir djollí.

Núna verðum við sem sagt að passa að atvinnulífið falli ekki niður. Góður brandari, Villi.


mbl.is Það verður að passa upp á skattstofnana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðferðisbrot gert að lagaþrætu

Fróðlegt verður að fylgjast með hvort sjálfstæðismenn í Kópavogi ætli að hampa manni sem lætur tugmilljónakróna verktakagreiðslur renna úr sjóðum bæjarins til dóttur sinnar á hæpnum forsendum og felur slóðina með því að dreifa greiðslunum á mörg bókhaldsnúmer.

Í siðferðilegri umræðu eru lögfræðingar lygarar til leigu. Þeir hafa aðeins það fram að færa sem þeir eru keyptir til að segja. Af sjálfu leiðir að það er ómarktækt.


mbl.is Var ekki skylt að bjóða verkin út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð svarar kalli samtímans

Við þurfum ekki beyglaða og bælda stjórnmálamenn sem með slitgiktarkrókóttum vísifingri vísa til himins en ætla okkur til ESB-heljar. Þjóðin þarf á glaðbeittum foringjum að halda sem geisla af sjálfstrausti, telja kjark í þjóðina og  rísa gegn aumingjalegum undirlægjuhætti.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er með framgöngu sinni í Icesave-málinu að vísa veginn. Andstæðingar hans í pólitík skynja það og þess vegna er hafin herferð ófrægingar gegn honum. Þar spila með nafnlausir bloggarar, lauslátir prestar og afturkreistingar fjölmiðaelítunnar.

Sigmundur Davíð fær pólitíska umbun áður en elliheimilið tekur fjanda hans í geymslu.


Plottið um að fella Icesave

Icesave-samningurinn er dæmdur. Vélað var um fall samningsins áður en hann var kynntur. Tortryggilega skammur aðdragandi og léleg upplýsingagjöf áttu að efla mótstöðuna gegn samningnum. Það hefur gengið eftir, Icesave fær ekki stuðning á Alþingi og verður felldur.

Ráðamenn eru þegar farnir að plotta næsta skref; hverjum verður þakkað að fella samninginn og hver situr uppi með Svarta-Pétur. Það liggur ekki fyrir hvort ríkisstjórnin muni standast áfallið, þess vegna er þegar rætt um þjóðstjórn.


mbl.is Krefjast þess að þingmenn fái aðgang að samkomulaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæði smáþjóða og sameiginlegt forræði Evrópuþjóða

Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er stórt skref að taka og hefur víðtækar afleiðingar bæði til skamms tíma og til framtíðar.

Skammtímaáhrif aðildarumsóknar verða þau að þjóðfélagið mun loga í illdeilum þar sem stórfelldir þjóðarhagsmunir eru í húfi. Í stjórnmálasögu lýðveldisins er aðeins eitt mál sem kemst í hálfkvisti við umræðuna um aðild landsins að Evrópusambandinu og það er herstöðvarmálið og innganga Íslands í Nato um miðbik síðustu aldar.

Það er ábyrgðarhluti að efna til innanlandsófriðar um utanríkismál og smáþjóð er það sérlega hættulegt. Það liggur í hlutarins eðli að sjálfstæði og fullveldi er smáþjóðum viðkvæmara en stórþjóðum.

Grundvallarbreytingar í utanríkismálum þjóða, hvort heldur stórra eða smárra, gerast einkum með tvennum hætti. Í fyrsta lagi með átökum, stríði eða annars konar hagsmunabaráttu, og í öðru lagi með hægfara langtímaþróun. Afstaða Íslendinga til aðildar að Evrópusambandinu verður að meta út frá seinna sjónarhorninu, hægfara langtímaþróun.

Sjálfstæðisbaráttan er samofin stjórnmálum og varðveislu íslenskrar menningar síðustu 150 árin. Markmið sjálfstæðisbaráttunnar var fullt forræði Íslendinga í eigin málum. Í áföngum tókst að ná markmiðinu og nærtækt að líta svo á að síðasti stóri áfanginn hafi verið útfærsla landhelginnar í 200 mílur á áttunda áratugnum.

Á meðan Íslendingar sóttust eftir sjálfsforræði varð til málamiðlun á meginlandi Evrópu um að framselja forræði í lykilmálum þjóðríkja til yfirþjóðlegs valds. Tvær heimsstyrjaldir, báðar með upptök í Evrópu, leiddu stórþjóðirnar Frakka og Þjóðverja að þessari niðurstöðu og nágrannaþjóðir létu til leiðast. Kola- og stálbandalagið var undanfari Evrópusambandsins en kol og stál voru ein mikilvægustu hráefni stríðsrekstrar. Með sameiginlegu forræði yfir auðlindum ætluðu meginlandsríkin að draga úr innbyrðis átökum.

Evrópusambandið er málamiðlun meginlandsþjóða álfunnar. Sambandið er einnig orðið valdamiðstöð þangað sem þjóðir leita skjóls frá voldugum nágrönnum, Írar gagnvart Bretum og Finnar frá Rússum. Þjóðir sem liggja ekki nærri átakasvæðum álfunnar eru með margvíslega fyrirvara á samstarfinu. Bretar hafa ekki tekið upp evru, Írar felldu Lissabonsáttmálann, Svíar og Danir höfnuðu gjaldmiðlasamstarfi og svo má áfram telja. Jaðarþjóðir Evrópu eru af sögulegum og landfræðilegum ástæðum tregar til málamiðlana sem kjarnaþjóðirnar hafa talið nauðsynlegar.

Ísland er bæði hvað sögu og landafræði varðar á annarri siglingu en Evrópa meginlandsins. Ef við nánast upp úr þurru myndum gerbreyta utanríkisstefnu okkar og ganga í Evrópusambandið yrðum við áttavillt. Þjóð verður áttavillt þegar hún kastar hugsunarlaust fyrir róða stefnumiðum sem hafa dugað öldum saman. Og þjóð sem veit ekki sinn veg lendir í raunum.

Þessari tillögu að þingsályktun ber að hafna.

(Ofanritaður texti er samhljóða umsögn sem var send utanríkismálanefnd Alþingis um þingskjal 38, tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Í dag, 15. júní, rennur út fresturinn til að senda inn umsögn, sjá slóð á utanríkismálanefnd hér).


Búðarlokusálfræði Mogga

Auglýsingasálfræðin í spurningu Morgunblaðsins er hliðstæð venju sumra verslana að setja sælgætisrekka í rétta hæð fyrir börn til að þau nauði í foreldrum að kaupa gotterí. Í öllu sínu veldi er spurning Morgunblaðsins þessi: Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að taka upp aðildarviðræður við ESB?

Lykilorðin eru að taka upp. Málfarslega er eðlilegra að segja hefja aðildarviðræður... o. s. frv. En sögnin að hefja vísar til ákvörðunar, maður ákveður að hefja eitthvað. Og Morgunblaðið vill ekki láta þjóðina halda að hún sé að taka ákvörðun um að hefja aðildarviðræður með því að sækja um aðild. Nei, Moggalygin er að það sé verið að taka upp aðildarviðræður, svona eins og maður tekur upp pakka til að sjá hvað er í honum.

Allir sem kunna að lesa vita að í Evrópusambandspakkanum er aðeins eitt: Evrópusambandið. Moggalygar fela ekki þá bláköldu staðreynd.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband