Föstudagur, 20. mars 2015
Sigríður Ingibjörg: Samfylking ekki bankaflokkur
Sigríður Ingibjörg frambjóðandi til formanns Samfylkingar segir
Samfylkingin á ekki að vera flokkur verðtryggingar og banka
Gott að fá það á hreint.
![]() |
Við þurfum ekkert að óttast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 20. mars 2015
Árna Páls-lögin í þágu Lýsingar
Vinstristjórnin setti lög sem áttu að styðja skulduga einstaklinga í baráttunni við banka og fjármálastofnanir.
Nú ber svo við að lögin, sem kennd eru við Árna Pál Árnason formann Samfylkingar og þáverandi viðskiptaráðherra, eru nýtt af fjármálafyrirtæki með vont orðspor til að losna undan kröfum sem einstaklingar eiga á fyrirtækið.
Skjaldborg Árna Páls og Samfylkingar nýtist fjármálafyrirtækjum í baráttu við einstaklinga. Það segir heilmikla sögu um þetta ógæfulið sem stýrði landinu 2009 til 2013.
![]() |
Stefndu til að forðast fyrningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 20. mars 2015
Kjúklingar hamingjusamari á Íslandi en í ESB
Íslendingar búa betur að kjúklingunum sínum en Evrópusambandið. Íslensk stjórnvöld setja reglugerðir með ríkari kröfum um aðbúnað kjúklinga en Evrópusambandið gerir til sinnar framleiðslu.
Við leggju ekki á íslenska kjúklinga vélstrokkaðar tilberareglugerðir heldur hamingjuvæðum við aðstæður fiðurfjárins með nógu rými og huggulegum aðbúnaði.
Fólk og fiðurfé býr betur á Íslandi en innan ESB.
![]() |
Kjúklingar þurfa meira rými en í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19. mars 2015
Pírata-RÚV framboð gegn Árna Páli
Fylgisaukning Pírata og fylgisstöðnun Samfylkingar er meginástæða framboðs Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur gegn Árna Páli Árnasyni sitjandi formanni. Fleira kemur þó til.
Sigríður Ingibjörg fékk einkaviðtal á RÚV um framboðið daginn fyrir landsfundinn til að kynna framboðið og munar um minna.
RÚV-arinn Egill Helgason var fyrstur til að hóta Árna Páli mótframboði Sigríðar Ingibjargar og nú gengur það eftir nánast í beinni útsendingu.
Snoturt hjá RÚV.
![]() |
Býður sig fram gegn Árna Páli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 19. mars 2015
Írland og evra; fyrst þensla síðan kreppa
Evran var bein orsök þenslu bankakerfisins í aðdraganda írska hrunsins, sem varð á sama tíma og það íslenska, og evran er bein orsök fyrir varanlegri kreppu á Írlandi.
Írski hagfræðingurinn David MacWilliams segir írska hagkerfið ekki í neinum skilningi evrópskt heldur er það engilsaxneskt, með áherslu á utanríkisviðskipti við Bretland og Bandaríkin.
Evran hentar ekki Írum og enn síður Íslendingum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 19. mars 2015
Lítið fylgi Pírata
Píratar eru óhreinatauskarfa íslenskra stjórnmála. Með því að styðja Pírata í skoðanakönnun lýsir fólk yfir vantrausti á stjórnmálum eins og þau eru stunduð af ráðsettu flokkunum.
Fylgisaukning Pírata er yfirlýsing nær fjórðungs kjósenda að þeim sé nóg boðið.
Eiginlega er mesta furða að fylgi Pírata sé ekki meira.
![]() |
Píratar stærstir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 19. mars 2015
Alþingi og þingmenn án málstaðar
Á alþingi er auðveldara að taka mál i gíslingu en að koma þeim áfram. Þingsköpin skapa minnihlutanum færi á að misnota réttinn til umræðu í þágu málþófs.
Málþóf getur verið réttlætanlegt þegar um mikilsverð málefni er að ræða, t.d. stjórnarskrá lýðveldisins.
En þegar um er að tefla ESB-umsókn sem fæddist vansköpuð fyrir sex árum og lamaðist fyrir síðustu kosningar er málþóf tilgangslaust og ekki í þágu neins málsstaðar.
Píratar eru einmitt þannig söfnuður; enginn málstaður, aðeins tilgangsleysi.
![]() |
Þingmaður lét falla hér óviðeigandi orð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 18. mars 2015
ESB beitir Íslandi ofríki
Evrópusambandið læsti klónum í Ísland með umboðslausu og vanhugsuðu aðildarumsókn vinstristjórnar Jóhönnu Sig. sumarið 2009.
Evrópusambandið þykist hafa heimild til að halda Íslandi sem umsóknarríki þrátt fyrir skýr og ótvíræð skilaboð ríkisstjórnar Íslands um að landið sé hætt við ESB-ferlið.
Með því að halda Íslandi sem umsóknarríki þvert á yfirlýstan vilja íslenskra stjórnvalda sýnir Evrópusambandið fullvalda þjóð yfirgang.
![]() |
Ísland enn á lista yfir umsóknarríki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 18. mars 2015
Samfylkingin komin í hring: enginn samningur, samt þjóðaratkvæði
Samfylkingin og aðrir ESB-sinnar eru í sex ár búin að klifa á þeim rökum að alls ekki sé tímabært að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um afstöðuna til Evrópusambandsaðildar fyrr en samningur um aðild liggi fyrir.
ENGINN SAMNINGUR, EKKERT ÞJÓÐARATKVÆÐI var viðhorf Samfylkingar og Vinstri Grænna sem höfnuðu tillögu Sjálfstæðisflokksins 16. júlí 2009 um að þjóðin yrði spurð áður en lagt var upp í ESB-ferlið.
Allir þingmenn Samfylkingar höfnuðu tillögunni og sömuleiðis Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar.
Eru engin takmörk fyrir hræsni og tvöfeldni þingmanna vinstriflokkanna?
![]() |
Vilja að þjóðin fái að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 18. mars 2015
Menntun, laun og þjóðmenning
Lítil fylgni menntunar og launa á Íslandi rímar við þjóðmenningu sem lætur ekki bókvitið í askana.
Einnig er þessi litla fylgni menntunar og peningaverðmæta auglýsing fyrir inngróna jafnaðarmennsku Íslendinga.
Jafnframt staðfesting á þeim sannindum að menntun gerir mann ekki meiri heldur mennskari.
Og mennska er ekki mæld í krónum og aurum.
Við erum lánsöm þjóð, við Íslendingar, enda búum við að mennsku launajafnrétti.
![]() |
Minnstur ávinningur á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)